Mikilvæg nýjung fyrir sjóðfélaga á lífeyri sem búa erlendis
Nú er hægt að auðkenna sig með innskráningu á Mínar síður í stað þess að skila inn lífsvottorði.
24. feb. 2026
Nú er hægt að auðkenna sig með innskráningu á Mínar síður í stað þess að skila inn lífsvottorði.
24. feb. 2026
Nú er hægt að skrá sig inn á Mínar síður í stað þess að skila inn lífsvottorði. Innskráningu þarf að ljúka fyrir 15. maí á hverju ári annars falla greiðslur niður frá og með júní.
Í janúar fengu 839 sjóðfélagar á lífeyri sem búa erlendis bréf á island.is um að skrá sig inn rafrænt. Nú þegar hafa 2 af hverjum 3 skráð sig inn með rafrænum skilríkjum.
Fyrir þá sem ekki hafa rafræn skilríki eða auðkennisappið er hægt að skila inn lífsvottorði á pappírsformi.
Ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við ráðgjafa okkar á lifeyrir@live.is