Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Ertu að byrja að vinna?

Taktu góðar ákvarðanir strax í upphafi og leggðu grunn að fjárhagslegu öryggi. 

LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 8 0223 LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 8 0223

Stærsti opni lífeyrissjóðurinn

Betri áfallavernd

Greiðsluhlé á húsnæðislánum

Ábyrgar fjárfestingar

Stafræn þjónusta

Þegar þú verður 16 ára og byrjar að vinna, byrjarðu líka að safna í lífeyrissjóð. Það þýðir að hluti af laununum þínum fer sjálfkrafa í sjóð sem verður notaður þegar þú hættir að vinna seinna á ævinni, oftast um sjötugt.

Með því að vera í lífeyrissjóði, eins og Lífeyrissjóði verzlunarmanna, ertu ekki bara að safna fyrir framtíðina. Þú færð líka öryggi strax í dag – til dæmis vernd ef þú veikist alvarlega eða lendir í slysi. Þetta er allt innifalið í því sem þú borgar í sjóðinn, án þess að þú þurfir að gera neitt aukalega.

Svörin við þínum spurningum

Hvers vegna þarf ég að borga í lífeyrissjóð?

Það eru þrjár megin ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi til að þú safnir upp rétti til að fá eftirlaun þegar aldurinn færist yfir og þú vilt minnka við þig vinnu eða hætta alveg að vinna.  

Í öðru lagi færðu svokallaða áfallavernd með því að borga í lífeyrissjóð. Ef þú veikist alvarlega eða lendir í slysi og getur ekki unnið þá færðu örorkulífeyri frá sjóðnum. Ef þú fellur frá fær fjölskylda þín maka- og barnalífeyri.

Í þriðja lagi er það samkvæmt lögum svo enginn hefur val um að afla sér ekki þessara réttinda.

Hvað borga ég mikið? 

Þú borgar 4% af þínum launum í lífeyrissjóð en launagreiðandinn þinn borgar 11,5% á móti. 

Ef þú bætir við séreignarsparnaði þá færðu 2% til viðbótar frá launagreiðanda og þú getur valið að borga annaðhvort 2 eða 4%. Við mælum með að allir greiði 4%.

 

Hvernig vel ég mér lífeyrissjóð?

Fyrir ungt fólk skiptir þrennt mestu máli. Það borgar sig að velja lífeyrissjóð sem

  1. hefur eingöngu hag sjóðfélaga að leiðarljósi, skilar góðri ávöxtun og góðum rekstri því hvert prósent sem ávaxtað er yfir áratugi getur skipt milljónum þegar komið er á eftirlaunaaldur.

  2. veitir góða áfallavernd sem er dýrmætust á yngri árum - mikill munur getur t.a.m. verið á áfallavernd sem býðst hjá LV í samanburði við sjóði sem leggja áherslu á séreign.

  3. hefur að stefnu að sjálfbærni og góðir stjórnarhættir séu undirstaða góðrar langtímaávöxtunar og útilokar fjárfestingar í fyrirtækjum sem framleiða tóbak, umdeild vopn og tiltekna flokka jarðefnaeldsneytis auk þeirra sem brjóta gegn alþjóðasamningum. 

En ekki geta allir valið. Margir borga til tiltekinna lífeyrissjóða samkvæmt kjarasamningum. Þeir sem fá greitt samkvæmt kjarasamningum VR eiga til dæmis að borga til LV, þeir sem vinna hjá Ríkinu borga til LSR og þeir sem vinna hjá Reykjavíkurborg borga til Lífeyrissjóðsins Brúar.

Allir sem ekki eru bundnir af öðru geta greitt til LV. 

Hvernig get ég keypt íbúð með lífeyrissparnaði?

Þeir sem eiga séreignarsparnað og eru að kaupa eða byggja sér íbúðarhúsnæði í fyrsta skipti geta nýtt uppsafnaðan séreignarsparnað allt frá júlí 2014 til útborgunar á fyrstu íbúðarkaupum allt að 5 milljónum króna.

Einnig er hægt að nýta mánaðarleg iðgjöld til að greiða niður lán og/eða lækka mánaðarlega afborgun.

 

Hverju máttu ekki missa af?

Sama hvort þú ert í sumarvinnu eða framtíðarstarfi þá máttu ekki missa af 2% launahækkun sem þú færð þegar þú skráir þig í viðbótarlífeyrissparnað. Þegar þú leggur fyrir 2% eða 4% af launum færðu strax 2% launahækkun sem er mótframlag launagreiðanda.

Það er mjög einfalt að byrja að spara. Þú skráir þig á Mínum síðum á 2 mínútum og lætur okkur vita hvar þú ert að vinna og við sjáum um að láta vinnuna þína vita. 

Þennan sparnað geturðu svo nýtt upp í fyrstu kaup á íbúð upp að 5 milljónum króna, skattfrjálst!

Af hverju fæ ég mest fyrir peninginn þegar ég er yngri?

Greiðslur til sjóðsins eru aldurstengdar. Því yngri sem þú ert því meiri réttindi færðu vegna þess að þitt iðgjald verður ávaxtað í sjóðnum í lengri tíma.

LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 6 0223 LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 6 0223

Hvers vegna ættir þú að velja Lífeyrissjóð verzlunarmanna

  • Með eina af hæstu ávöxtun lífeyrissjóða í 28 ár 
  • Hæsti lífeyrir á almennum markaði
  • Stærsti opni lífeyrissjóðurinn með 70 ára farsæla sögu
  • Meiri tryggingavernd fyrir þig og þína 
Vilta vita meira um kosti LV?
Fréttir

Hvað segja Ólíver og Sylvía?

Óliver og Sylvía eru í háskólanámi og unnu hjá sjóðnum í sumar. Smelltu til að kynna þér hvað þau hafa að segja um lífeyrismálin og ungt fólk.
Skoða myndbönd

Viltu launahækkun? 

Ekki bíða með að skrá þig í séreignarsparnað sem er viðbót við það sem þú borgar í lífeyrissjóð. Það eru ekki nema 2-4% af launum og þú færð strax 2% til viðbótar frá launagreiðandanum þínum. 

 

Þann pening getur þú svo notað skattfrjálst sem útborgun í íbúð og til að greiða niður húsnæðislán. Séreign er líka hugsuð til að hafa það betra þegar þú hættir að vinna.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að fræðast meira um lífeyrismál

Tiktok Instagram Facebook
Anna Eiríksd Anna Eiríksd

Anna Eiríksdóttir

ráðgjafi

Fyrir ungt fólk er mikilvægt að eiga sterk réttindi til áfallaverndar eins og hjá okkur. Það getur breytt öllu að eiga góð réttindi vegna slysa eða sjúkdóma fyrir afkomu fjölskyldunnar í slíkum aðstæðum. Allir ættu líka að safna séreign frá upphafi því það getu skipt miklu við fasteignakaup.

Hluthafastefna

Viltu gerast sjóðfélagi?

Við tökum vel á móti þér hjá stærsta lífeyrissjóðnum á frjálsum markaði. Okkar höfuðmarkmið er að hámarka eignir og réttindi sjóðfélaganna. Láttu launagreiðanda þinn vita að þú viljir greiða þín iðgjöld til LV.

Ég vil gerast sjóðfélagi