Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Ísland í fremstu röð í heiminum fimmta árið í röð

Íslenska lífeyriskerfið er í öðru sæti, á eftir Hollandi í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu sem ráðgjafarfyrirtækið Mercer og samtökin CFA Institute standa að.

LV Sjodfelagi Radjgjafi LV Sjodfelagi Radjgjafi

Íslenska lífeyriskerfið er í öðru sæti, á eftir Hollandi í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu sem ráðgjafarfyrirtækið Mercer og samtökin CFA Institute standa að.

Ísland tók nú í fimmta sinn þátt í vísitölunni þar sem gerður er samanburður á lífeyriskerfum 52 ríkja. Ísland fékk A einkunn ásamt Hollandi, Danmörku, Singapore og Ísrael. Í skýrslu Mercer gefur A einkunn til kynna:

Öflugt lífeyriskerfi sem tryggir góð réttindi, er sjálfbært og sem traust ríkir um.

Lífeyrisvísitalan metur heildarlífeyriskerfi mismunandi landa út frá þremur meginþáttum; sjálfbærni, nægjanleika og trausti, og var Ísland með A einkunn í öllum þremur meginflokkum eins og undanfarin ár.

Sækja Mercer CFA Institute Global Pension Index 2025