Breytingar á lánaframboði sjóðsins og öflug stafræn þjónusta
Breytingar á lánaframboði sjóðsins og öflug stafræn þjónusta
Nýlega gerði sjóðurinn eftirfarandi breytingar á lánaframboði til sjóðfélaga. Nýjar tegundir verðtryggðra og óverðtryggðra lána eru nú í boði en á sama tíma var hætt að bjóða verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann.
27. maí 2026
Óverðtryggð lán
Nú bjóðast sjóðfélögum óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára (36 mánuði) sem miðast við þá vexti sem eru í boði á hverjum tíma.
Að loknu fast-vaxtatímabili verða vextir breytilegir og samanstanda af breytilegum grunnvöxtum og föstu vaxtaálagi sjóðsins. Vextir geta þó aldrei orðið lægri en tilgreint vaxtagólf sem kemur fram í skuldabréfi.
Lánstími óverðtryggðra lána er allt að 40 árum.
Verðtryggð lán
Við bjóðum verðtryggð lán með föstum vöxtum til fimm ára (60 mánaða) og miðast við þá vexti sem eru í boði á hverjum tíma.
Að loknu fyrsta fast-vaxtatímabili taka við 5 ára fast-vaxtatímabil í senn, út lánstímann, þar sem vextir eru miðaðir við fasta langtímavexti verðtryggðra ríkisskuldabréfa (FLVR), Par – vexti Seðlabanka Íslands, auk fasts vaxtaálags sjóðsins, skv. nánari ákvæðum í skilmálum fasteignalána sjóðsins. Vextir geta þó aldrei orðið lægri en tilgreint vaxtagólf sem kemur fram í veðskuldabréfi.
Lántakendum verður áfram heimilt að endurfjármagna lán sín án uppgreiðslugjalds.
Lánstími er til allt að 25 ára, en fyrstu kaupendur geta fengið verðtryggð lán til allt að 40 ára.
Aukin stafræn þjónusta fyrir lántakendur
Nýlega var tekið upp nýtt lánakerfi hjá sjóðnum sem veitir aukna möguleika til að veita lántakendum stafræna þjónustu í fremstu röð. Helstu nýjungar sem hafa þegar verið innleiddar á Mínar síður eru eftirfarandi:
Reiknivél til að skoða áhrif á lán
Á mínum síðum sjóðsins er nú hægt að skoða hvaða áhrif breyttar forsendur hafa á núverandi lán. Þar er að finna lánareikni þar sem hægt er að reikna hvaða áhrif innborgun og/eða breyting á fjölda gjalddaga hefur á lánið. Einnig er hægt að sjá þar áhrif breytinga á vöxtum og greiðslufyrirkomulagi.
Greitt inn á lán
Lántakar geta einnig með einföldum hætti stofnað kröfu í heimabanka sínum ef þeir vilja greiða inn á lán sitt. Ef krafan er ekki greidd, þá fellur hún einfaldlega niður eftir 5 daga.
Greitt inn á lán - reglulega
Einnig er hægt að stofna umframgreiðslusamning til lengri tíma. Þá stofnast krafa í bankanum að upphæð sem lántaki ákveður sjálfur, 5 dögum fyrir gjalddaga. Ef sú krafa er ekki greidd, þá fellur hún niður 5 dögum eftir gjalddaga.
Uppgreiðsla láns
Ef lántaki vill greiða upp lánið í einni greiðslu þá er hægt að stofna kröfu að uppgreiðslu virði lánsins sem lifir í heimabankanum út þann sama dag og til hennar er stofnað.
Breytingar á láni
Hægt er að óska eftir breytingu á lánstíma í gegnum mínar síður og að bæta vanskilum á höfuðstól.
Nánari upplýsingar um lán má finna hér á vefnum auk þess sem hægt er að bóka tíma með ráðgjafa.