Brynjólfur Hjörleifsson er 41 árs sérfræðingur í lífeyrisdeild Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Hann hefur verið þrjú ár hjá sjóðnum og starfaði áður hjá TR í fjögur ár. Billi segir okkur frá eigin reynslu af mikilvægi lífeyrisréttinda og frá verkefnunum í vinnunni.
16. jún. 2025
Billi eins og hann er oftast kallaður hefur áhugaverðan bakgrunn því hann fór á sjóinn eftir útskrift úr framhaldsskóla og var á sjó samhliða háskólanámi í stjórnmálafræði og að námi loknu. Svo bætti hann við sig diplómanámi í opinberri stjórnsýslu. En hvernig ætli standi á því að leiðin lá til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna?
Hvers vegna ákvaðstu að sækja um hjá LV?
Ég lenti sjálfur í bílslysi árið 2016 og þurfti að hætta á sjónum eftir það. Það sem kom mér mest á óvart í því ferli var sú trygging eða áfallavernd sem ég átti rétt á. Fram að því hugsaði maður alltaf um að hlutverk lífeyrissjóða væri bara að greiða ævilangan lífeyrir þegar þar að kæmi.
Eftir slysið fór ég svo að vinna hjá TR og áttaði mig nú fljótt á því hvernig kerfið virkar, í raun tvö aðskilin kerfi sem hafa samt mikil áhrif hvort á annað. Það má segja að þetta tvennt hafi vakið áhuga minn og þegar ég sá starfið auglýst hjá LV var ég ekki lengi að ákveða að sækja um og hef svo sannarlega ekki séð eftir því.
Ég hafði ekki hugmynd um það á þessum tíma að lífeyrissjóðir myndu grípa mann við þessar aðstæður og ég held að flestir geri sér ekki grein fyrir því fyrr en maður lendir í áfalli. Þarna fann ég bara á eigin skinni hvað er þarna að baki og hvernig þetta kerfi virkar. Þarna fann ég og áttaði mig á því á hvað lífeyrissjóðskerfið er mikilvægt.
Það hjálpast allir að við að skreyta jólatréð
Hver eru þín helstu verkefni í vinnunni?
Mín helstu verkefni eru að úrskurða um lífeyri hjá sjóðfélögum sem sækja um örorkulífeyri, makalífeyri eða ævilangan lífeyri ásamt því að sinna ráðgjöf til sjóðsfélaga.
Að úrskurða örokulífeyrir felur í sér, með smá einföldun, að taka umsóknina, skoða hvaða gögn fylgja og hvort eitthvað vanti, láta vita ef svo er ekki. Senda gögn áfram til trúnaðarlæknis og þegar örorkumat læknis berst til baka þá kanna ég réttindastöðu umsækjanda hjá öðrum lífeyrissjóðum. í framhaldinu reiknast endanleg réttindi sem viðkomandi á rétt á og umsækjandi fær tilkynningu um það inn á Mínar síður.
Hvað varðar umsókn um ævilangan lífeyri snýr það meira að því að skoða áunnin réttindin sem viðkomandi á hjá sjóðnum og þá aldur við upphaf lífeyristöku. Viðmið réttindanna er 67 ár en greiðslan er hærri ef þú frestar því lengur og lægri ef þú byrjar fyrr.
Þetta hljómar kannski allt tiltölulega einfalt en það eru fjölmörg atriði sem þarf að skoða og velta fyrir sér. Svona ferli í kringum umsóknir getur krafist töluverðra samskipta við sjóðfélaga og eins við starfsfólk annarra lífeyrissjóða líka.
Ég reyni líka að gefa mér góðan tíma í að aðstoða sjóðfélaga sem eru í vandræðum með að komast í gegnum málin hjá TR. Ég hef auðvitað góða reynslu þaðan og þekki ferlið og reglurnar hjá TR, m.a. hvernig þessi tvö lífeyriskerfi, almannatryggingakerfið og lífeyrissjóðskerfið vinna saman. Svo reynslan frá TR hefur nýst mér ákaflega vel í störfum mínum fyrir sjóðinn
Svo eru fjölmörg önnur verkefni sem þarf að sinna, t.d tekjuskoðanir á örorkulífeyrir, móttaka og skráning á læknisfræðilegum gögnum, móttaka á lífsvottorðum og skattframtölum frá þeim sjóðsfélögum sem búsettir eru erlendis svo einhver dæmi séu tekin.
Bræðurnir Hrafnkell og Hjörleifur með pabba sínum í sumarfríi á Ítalíu
Hvað kannt þú best að meta við vinnustaðinn?
Þetta er bara frábær vinnustaður. Hér er mjög góður starfsandi. Fyrir mig skiptir miklu máli að það er góður sveigjanleiki fyrir fjölskyldufólk með ung börn. Hægt að vinna heima þegar sú staða kemur upp. Svo er deildin mín bara mjög þétt og góð.
Við erum sjö á lífeyrissviðinu sem vinnum allar umsóknir um lífeyri og séreign. Við vinnum náið saman, fólk sem hefur mikla og góða þekkingu á lífeyrismálum.
Það getur oft verið ansi mikið að gera eins og gefur að skilja í stærsta frjálsa lífeyrissjóð landsins en það eru í kringum eitt þúsund mál í hverjum mánuði sem við erum að klára fyrir utan allskonar fyrirspurnir og samskipti. Það eru rúmlega 20 þúsund manns sem fá ævilangan lífeyri, næstum 6 þúsund örorkulífeyri og um 2 þúsund makalífeyri.
Svo má ekki gleyma framúrskarandi mötuneyti sem gerir alla daga betri.
Billi með kátum skokkurum á Menningarnótt
Er eitthvað sem þú vilt deila með sjóðfélögum? Góð ráð eða innsýn í eitthvað sem fáir vita um?
Já, mig langar að nefna þrennt. Fyrst og fremst vil ég hvetja fólk til að kynna sér lífeyrismálin vandlega. Við erum alltaf tilbúin að svara spurningum og veita upplýsingar. Við borgum 15,5% af laununum um hver einustu mánaðarmót í lífeyrissjóð – það er alveg summa sem skiptir máli og það eitt ætti að hvetja fólk til að skoða málið gaumgæfilega.
Íslenska lífeyrissjóðskerfið hefur fengið sína gagnrýni í gegnum tíðina en staðreyndin er samt sú að við íslendingar búum við eitt besta lífeyriskerfi í heimi.
Ekki nóg með að þetta sé réttur til lífeyris ævina á enda þegar lífeyrisaldri er náð, óháð því hversu gamall maður verður, heldur líka trygging við áföllum eða tekjur til maka vegna fráfalls maka. Þeir sem eiga rétt til framreiknings eiga þar mikil verðmæti.
Gætirðu útskýrt hvað framreikningur réttinda er? Hljómar eins og eitthvað sem er mjög flókið
Já, það er fáir sem vita hvað þetta þýðir, eðlilega kannski. Framreikningur er einn af fjársjóðunum í réttindum samtryggingar.
Réttur til framreiknings þýðir einfaldlega að ef sjóðsfélagi lendir í áfalli sem leiðir til orkutaps eru réttindi sjóðfélaga áætluð eins og sjóðsfélaginn hafi greitt áfram með sama hætti til 65 ára aldurs.
Þannig getur útgreiðsla örorkulífeyris t.d. verið mun hærri en áunnin réttindi þegar veikindin eða slysi verða. Sem getur skipt ungt fólk miklu máli hvað varðar tekjuöryggi til framtíðar.
Svo er það makalífeyririnn.
Stundum er talað um það á kaffistofunum að þú fáir ekkert úr lífeyrissjóðunum eftir andlát. Ekkert sem erfist. Það er ekki rétt því með makalífeyrir er maka sjóðfélaga tryggður makalífeyrir sem er mislangur eftir aðstæðum fólks. Hjá okkur fá þeir sem eiga ung börn 60% af réttindum makans þar til yngsta barn verður 23 ára.
Ef maki sjóðfélaga er öryrki við fráfallið fær hann greiddan makalífeyri til 67 ára aldurs. Annars er makalífeyrir að lágmarki greiddur í 5 ár hjá okkur.
... og ekki borga óþarfa kostnað fyrir litla ávöxtun
Síðast en ekki síst þá vil ég hvetja fólk til að greiða í séreign og/eða tilgreinda séreign, kynna sér það til hlítar hvað felst í því að greiða séreign til mismunandi aðila. Hver er kostnaðurinn sem þú borgar? Hvað gerist ef þú vilt hætta og greiða séreign eitthvert annað? Hver er raunverulega ávöxtunin á samningstímabilinu? Það margborgar sig að kynna sér þetta vel áður en haldið er af stað. Og ef þetta liggur ekki skýrt fyrir á einfaldan hátt þá má ætla að það sé eitthvað sem þarfa að skoða nánar. Munurinn getur skipt milljónum þegar upp er staðið.
Feðgar í stífum golfæfingum
Þá að léttara hjali. Hvernig lítur sumarið út? Ætlar þú í gott sumarfrí?
Jú, þetta á að verða sumarið sem golfið verður tekið föstum tökum, eins og átti reyndar að vera síðastliðin nokkur sumur, við sjáum hvernig það fer. Svo ætla ég að reyna að vera duglegur að fara á Kópavogsvöllinn og veiða með strákunum mínum.
Það eru tvær skipulagðar ferðir í Veiðivötn í sumar. Hef farið þangað síðan ég var 12 ára með sama hópnum. Það jafnast ekkert á við að vera þar. Núna er ég byrjaður að taka eldri strákinn minn með og það gerir þetta ennþá skemmtilegra.
Billi með Hjörleifi syni sínum í Veiðivötnum með góðan feng!
Annars ætla ég að taka opnum örmum a móti sumrinu og njóta alls þess besta sem það hefur upp á að bjóða með fjölskyldu og vinum.