Séreignardeildir
LV rekur tvær séreignardeildir, aðra fyrir almenna séreign og hina fyrir tilgreinda séreign. Eignir séreignardeilda eru ávaxtaðar í fjórum leiðum sem fjallað er um í kafla um eignasöfn.
Greitt í séreign
4,0
milljarðar
Útgreiðslur séreignar
1,6
milljarðar
Fjöldi sjóðfélaga
4.614
í séreign
Fjöldi sjóðfélaga
3.994
í tilgreindri séreign
Iðgjöld til séreignardeildar
Iðgjöld til séreignardeildar námu 4.039 milljónum króna á árinu 2025 en 3.595 milljónum
árið 2024.
Útgreiðslur úr séreignardeild
Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild árið 2025 námu alls 1.607 milljónum króna en voru 1.332 milljónir árið 2024. Undir útgreiðslu séreignar eru útgreiðslur vegna aldurs, fasteignasparnaðar, fráfalls og örorku.