Upplýsingagjöf vegna áhættu tengdri sjálfbærni
Birt samkvæmt lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, samanber reglugerð ESB um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (ESB/2019/2088)
Hvað er SFDR?
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins, nr. (ESB) 2019/2088 um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu („SFDR reglugerðin“ eða „SFDR“), hefur verið innleidd í íslenskan rétt með lögum um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar. SFDR reglugerðinni er ætlað að tryggja samræmdar upplýsingar um hvernig aðilar á fjármálamarkaði meta áhættu tengda sjálfbærni og hvernig taka eigi tillit til helstu neikvæðra áhrifa sjálfbærniþátta við fjárfestingarákvarðanir.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1288 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 hefur nú einnig verið innleidd í íslenskan rétt en þar má finna í viðaukum töflur um mælikvarða sem lýsa neikvæðum áhrifum af fjárfestingarákvörðunum á sjálfbærniþætti. Samkvæmt 4. gr. SFDR reglugerðarinnar skulu aðilar á fjármálamarkaði birta og uppfæra á vefsvæði sínu ef þeir taka tillit til helstu neikvæðu áhrifa fjárfestingarákvarðana á sjálfbærniþætti, ellegar útskýra ef þeir taka ekki tillit til neikvæðra áhrifa.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna birtir yfirlýsingu um helstu neikvæðu áhrif af fjárfestingarákvörðunum sínum á sjálfbærniþætti í fyrsta sinn í júní 2025 fyrir innlenda hluta eignasafna sinna. Um er að ræða töflur sem finna má í fyrrnefndum viðaukum framseldu reglugerðarinnar. Þegar fram líða stundir mun LV birta téðar upplýsingar um stærri hluta eignasafna í takt við fáanleika gagna og gæði þeirra.
Hér eru birtar yfirlýsingar varðandi eftirfarandi:
Yfirlýsing varðandi samþættingu sjálfbærniáhættu í ákvarðanatökuferli fjárfestinga (gr. 3 í SFDR)
Áhætta tengd sjálfbærni er skilgreindur atburður eða ástand á sviði umhverfismála, félagsmála eða stjórnarhátta sem gæti, ef hann gerist, haft raunveruleg eða hugsanleg veruleg neikvæð áhrif á virði fjárfestingar, sbr. 22. tölulið, 2. gr. SFDR.
Yfirlýsing varðandi neikvæð áhrif fjárfestingaákvarðana á sjálfbærniþætti (e. Principal Adverse Impact on sustainability factors, PAI) (gr. 4 í SFDR)
Sjálfbærniþættir eru skilgreindir sem umhverfis-, félags- og starfsmannatengd mál, virðing fyrir mannréttindum og mál sem varða baráttu gegn spillingu og mútum, sbr. 24. tölulið, 2. gr. SFDR. Með helstu neikvæðu áhrifum er almennt átt við þau neikvæðu áhrif sem fjárfestingarákvörðun getur haft á ofangreinda þætti.
Yfirlýsing varðandi samþættingu sjálfbærniáhættu í starfskjarastefnu (gr. 5 í SFDR)
LV skal hafa upplýsingar í starfskjarastefnu sinni um hvernig hún samræmist innfellingu áhættu tengda sjálfbærni og skal birta hana á vef sjóðsins.