Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

SFDR flokkun sjóða

Hlutfall 6., 8. & 9. gr. sjóða í eignasöfnum LV. 

Við mat á sjálfbærniáhættu í verðbréfasjóðum og sérhæfðum sjóðum er litið til útsetningar og mildunar á fjárhagslega mikilvægum sjálfbærniáhættum. Auk þess er lagt mat á hæfni eignastýrenda sjóðanna sem um ræðir. Matið byggir m.a. á forskrift UN PRI og ILPA eftir tegund sjóðsins og því til stuðnings eru notuð gögn og greiningar frá gagnaveitum og greiningaraðilum. LV sendir auk þess sérsniðinn spurningalista, sem hluti af áreiðanleikakönnun, til viðkomandi eignastýrenda og/eða sjóðs til öflunar upplýsinga um sjálfbærniþætti svo unnt sé að leggja mat á þá. 

LV metur einnig, eftir fremsta megni út frá gagnaþekju, sjálfbærniáhættu undirliggjandi útgefenda í eignasöfnum sjóðsins, burtséð frá því hvort eignarhald sé beint (þ.e. bein fjárfesting í verðbréfum gefin út af útgefanda) eða óbeint (þ.e. eignarhald í verðbréfum útgefenda í gegnum sjóð eða sjóði). 

Til viðbótar við þessa aðferðafræði horfir LV einnig til þess hvort sjóðir séu flokkaðir sem 6. gr., 8. gr. eða 9. gr. samkvæmt skilgreiningu SFDR: 

  • 6. gr. : sjóðir sem samþætta ekki sjálfbærni í fjárfestingaferli 
  • 8. gr. : sjóðir sem efla umhverfislega og félagslega þætti  
  • 9. gr. : sjóðir sem hafa sjálfbæra fjárfestingu að markmiði 

Hlutfall sjóðanna í erlendum eignasöfnum LV í árslok 2024 var eftirfarandi: 

 

Chart 1, Chart element

Mynd 1: Hlutfall 6, 8 & 9. gr. sjóða í erlendum eignasöfnum LV m.v. árslokastöðu 2024 

Fyrirvari: Eignir merktar sem „ekki eiga við“ eru t.d. beinar eignir í erlendum útgefendum, peningamarkaðssjóðir. Ef gögn eru ekki til staðar um 8. eða 9.gr flokkun sjóðs er gengið að því vísu að sjóðurinn sé flokkaður skv. 6. gr. SFDR. 

 

Meirihluti erlendra eignasafna LV er í sjóðum sem eru flokkaðir skv. 6.gr. SFDR en það merkir að þeir samþætta ekki sjálfbærni í fjárfestingaferli sitt. Ástæðan fyrir því er að stórt vægi eignasafna LV erlendis er í vísitölusjóðum sem eru ekki í virkri stýringu. Meirihluti erlendra eignasafna LV í virkri stýringu er hins vegar flokkaður skv. 8. gr. SFDR.