Leiðbeiningar fyrir launagreiðendur

1. janúar 2023 tóku gildi breytingar á lögum um lífeyrissjóði. Þá hækkaði lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð úr 12% í 15,5% hjá öllum launþegum og þeim sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur. Nánari upplýsingar má finna á vef Alþingis

  • Hækkunin gildir líka fyrir einyrkja, verktaka og sjálfstætt starfandi. 
  • Lágmarksiðgjaldið 15,5% skiptist í 4% sem er iðgjald launþega og 11,5% sem er mótframlag launagreiðanda.

Launagreiðendur sem skila iðgjöldum í gegnum launakerfi

Ef skilagrein er send í gegnum launakerfi hjá launagreiðanda er prósentu breytt í launakerfinu í eitt skipti áður en skilagrein er send til sjóðsins.

Launagreiðendur sem skila iðgjöldum í gegnum fyrirtækjavef LV 

Frá og með janúar skilagrein 2023 verða skilagreinar sem berast gegnum fyrirtækjavef sjálfkrafa með mótframlag 11,5%.

Launagreiðendur sem þegar hafa skilað inn skilagreinum vegna janúar 2023 með lægri prósentu en 11,5% verður sjálfkrafa breytt hjá sjóðnum.

Ef þú þarfnast frekari aðstoðar við skil hafðu samband

Nánari upplýsingar um breytingar á lögum sem taka gildi 1. janúar 2023.