Tilgreind séreign
Þú getur valið að setja hluta af þínu framlagi í sjóðinn í hverjum mánuði í tilgreinda séreign. Aukinn sveigjanleiki svo þú getir haft lífið eftir vinnu eins og þú vilt.
Meiri séreign án þess að borga meira
Þú getur valið að láta allt að 3,5% af lífeyrisiðgjaldinu þínu fara í tilgreinda séreign.
Þú greiðir ekki meira, heldur velur hvernig iðgjaldið þitt skiptist. Þá fer allt að 3,5% í tilgreinda séreign og 12% fer áfram í að tryggja þér ævilangan lífeyri.
Helstu kostir
Tilgreind séreign getur brúað bilið þegar þú vilt minnka við þig vinnu eða hætta fyrr.
Hægt að taka út í jöfnum greiðslum frá 62 - 67 ára aldurs eða eins og þú vilt eftir 67 ára aldur.
Tilgreinda séreignin er þín eign og erfist ef þú fellur frá.
Þú velur ávöxtunarleið.
Þú borgar ekki meira
Þú notar hluta af iðgjaldinu sem nú þegar er greitt í sjóðinn fyrir þig til að byggja upp meiri séreign. Þannig byggir þú áfram upp ævilangan lífeyri í samtryggingu, en færð séreign að auki.

Gæti tilgreind séreign hentað þér?
Þegar líður á starfsævina getur verið hagstæðara að fá meiri séreign í stað réttinda þar sem réttindi gefa mest þegar á fyrri helmingi starfsævinnar.
Tilgreind séreign gæti hentað þér ef þú:
hefur þegar byggt upp nægjanleg réttindi til ævilangs lífeyris
vilt meiri sveigjanleika við starfslok
vilt eiga meiri séreign sem erfist
Skoðaðu tilgreinda séreign í þinni lífeyrisáætlun
Í lífeyrisáætluninni á Mínum síðum getur þú skoðað heildarmyndina þína með og án tilgreindrar séreignar.
Viltu aðstoð við að skoða hvað hentar þér?
Horfðu á stutt myndband
Taktu prófið: svaraðu nokkrum léttum spurningum
Bókaðu tíma með ráðgjafa okkar
Hægt er að bóka tíma í síma eða á staðnum - eins og þér hentar
Gott að vita áður en þú velur
Ævilangur lífeyrir verður lægri. Þegar hluti iðgjaldsins fer í tilgreinda séreign byggir þú upp minni rétt til ævilangs lífeyris á móti. Réttur þinn til örorkulífeyris og réttur maka til makalífeyris verður einnig lægri en ef allt iðgjaldið (15,5%) færi í samtryggingu.
Algengar spurningar um tilgreinda séreign
Geta allir greitt í tilgreinda séreign?
Allir þeir sem greiða 15,5% lágmarksiðgjald hafa val um að ráðstafa 3,5% í tilgreinda séreign.
Hver er munurinn á séreign og tilgreindri séreign?
Séreign er valfrjáls sparnaður, viðbót við lögbundin lífeyrissparnað. Ef þú sparar 2-4% af þínum launum þá greiðir launagreiðandi 2% mótframlag. Þú getur hafið úttekt við 60 ára aldur og fengið allt greitt í einu ef þú vilt.
Tilgreind séreign er hluti af lögbundnum lífeyrissparnaði. Þú hefur val um að ráðstafa næstum fjórðungi af 15,5% lögbundna iðgjaldinu þínu í tilgreinda séreign eða 3,5% af 15,5%. Hægt er að taka út tilgreinda séreign frá 62 ára með ákveðnum skilyrðum.
Hvenær má taka út tilgreinda séreign?
Tilgreind séreign er laus til útborgunar frá 62 ára aldri, en þá er greiðslunum dreift að lágmarki þar til þú nærð 67 ára aldri. Sé innstæða undir ákveðnum viðmiðum, kr. 1.896.830*, átt þú rétt á að óska eftir því að innstæðan verði greidd út í eingreiðslu. Tilgreind séreign er laus að fullu frá 67 ára aldri.
* 1.janúar 2026. Viðmiðunarfjárhæð þessi breytist mánaðarlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs.
Greiði ég skatt af greiðslum úr tilgreindri séreign?
Greiðslur úr lífeyrissjóðum og greiðslur séreignar eru skattlagðar eins og aðrar launatekjur en þú getur nýtt persónuafslátt þinn til þess að lækka skattana.
Við sjáum um að skila staðgreiðslu af lífeyrisgreiðslum til skattayfirvalda. Skattkort eru rafræn og nauðsynlegt er að láta vita hversu hátt hlutfall af skattkorti þú vilt nýta hjá sjóðnum.
Persónuafsláttur
- Skattkort lækkar skattinn því það veitir rétt til persónuafsláttar á staðgreiðsluári. Eigi lífeyrisþegi ónýttan persónuafslátt er mikilvægt að láta sjóðninn vita.
- Lífeyrisþegar geta nýtt allt að 100% af ónýttu skattkorti maka til skattalækkunar.
- Við fráfall maka geta lífeyrisþegar nýtt skattkort makans í 9 mánuði frá og með andlátsmánuði.
Erfist tilgreind séreign?
Já, tilgreind séreign erfist og skiptist á milli maka og barna þinna samkvæmt reglum hjúskapar- og erfðalaga. Samkvæmt hjúskaparlögumer helmingur séreignar skilgreind sem hjúskapareign og rennur að fullu til maka, hinn helmingurinn skiptist samkvæmt reglum erfðalaga á milli maka og barna. Þetta þýðir að maki fær 2/3 og börn 1/3.
- Ef þú lætur ekki eftir þig börn þá erfir maki þinn alla séreignina. Ef þú hefur ekki verið í hjónabandi við andlát þá erfa börn alla séreignina.
- Ef þú lætur ekki eftir þig maka eða börn rennur inneign til dánarbús.
Hvorki er reiknaður erfðafjárskattur né fjármagnstekjuskattur af erfðaséreign en greiddur er tekjuskattur við útgreiðslu.

Erfingjar geta afsalað sér sínum hluta áður en útgreiðslur hefjast en þá skiptist sá hluti eftir reglum erfðalaga.
Inneignin er laus til útgreiðslu eftir að skipting hefur verið framkvæmd en erfingjum stendur einnig til boða að ávaxta inneignina áfram hjá sjóðnum.
Hefur tilgreind séreign áhrif á greiðslur hjá TR?
Já, tilgreind séreign hefur áhrif á greiðslur hjá TR. Séreign sem er hluti lögbundins framlags í lífeyrissjóð eins og tilgreind séreign lækka greiðslur lífeyris frá TR.
Skerðir tilgreind séreign lífeyri frá TR?
Já, tilgreind séreign og önnur séreign sem tilheyrir 15,5% lágmarksiðgjaldinu skerðir greiðslur frá TR frá og með 1. janúar 2023 og er sömuleiðis ekki undanþegin þátttöku í dvalarkostnaði á stofnun fyrir aldraða og fleira.
Ein undantekning er þó á því; Þeir sem þegar hafa hafið töku lífeyris hjá TR fyrir 1. janúar 2023 munu ekki verða fyrir skerðingu.
Ef ég veikist eða lendi í slysi?
Verðir þú að hætta störfum vegna örorku af völdum slyss eða veikinda áttu rétt á að fá inneign þína í séreign greidda út á minnst sjö árum eða á þeim tíma sem vantar upp á 62 ára aldur. Sé innstæða undir ákveðnum viðmiðum, kr. 1.896.830*, átt þú rétt á að óska eftir því að innstæðan verði greidd út í eingreiðslu eða á skemmra tímabil en fyrrgreind sjö ár.
* 1.janúar 2026. Viðmiðunarfjárhæð þessi breytist mánaðarlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs.
Hefur tilgreind séreign áhrif á örorku- og makalífeyri?
Já, með því að ráðstafa hluta af iðgjaldi í tilgreinda séreign þá lækkar á móti sú áfallavernd sem fæst með fullu iðgjaldi í samtryggingu eða 15,5% framlag. Áfallaverndin er þó áfram til staðar af því iðgjaldi sem greitt er til samtryggingar, að minnsta kosti 12%.
Ég á íbúð, get ég nýtt tilgreinda séreign inn á lán?
Tilgreinda séreign er aðeins hægt að nýta ef þú ert í fyrsta fasteignar úrræðinu. Ef þú átt þegar íbúð og ert í almenna úrræðinu þá er það ekki í boði. Þú getur þó alltaf nýtt séreignarsparnað til að greiða inn á lán, nánari upplýsingar er að finna á vef skattsins.
Get ég nýtt tilgreinda séreign skattfrjálst til kaupa á fyrstu íbúð?
Já, það er hægt að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sjá nánar á vef Skattsins.
Ef að þú ert með séreignarsparnað þá þarft þú fyrst að nýta hann áður en þú nýtir tilgreindu séreignina.
Tilgreind séreign er greidd í lok hvers almanaksár, eða þegar liggur fyrir að hvaða marki hámarksfjárhæð hefur verið nýtt með greiðslu séreignarsparnaðar.
Ráðstöfun tilgreindar séreignar inn á lán er að jafnaði í formi eingreiðslu
Nýta má iðgjöld vegna tilgreindrar séreignar sem greidd eru frá og með 1.janúar 2023