Þeir sem fá laun samkvæmt kjarasamningum VR og FTAT (Félag tanntækna og aðstoðarfólks tannlækna).
Gagnlegar upplýsingar
Hlutverk launagreiðanda er að skila iðgjöldum sjóðfélaga til lífeyrissjóðs. Hér að neðan eru gagnlegar upplýsingar.
Lágmarksiðgjald allra launþega til lífeyrissjóðs, þ.m.t. sjálfstætt starfandi einstaklinga er 15,5% af heildarlaunum. Sjálfstætt starfandi einstaklingar greiða bæði hlut launþega og launagreiðanda.
- Launþegi greiðir 4%
- Launagreiðandi greiðir 11,5% mótframlag
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er opinn sjóður sem þýðir að allir sem ekki eru bundnir öðrum starfsgreinasjóðum mega greiða til sjóðsins bæði lágmarksiðgjaldið og séreignarsparnað.
Tilkynningaskylda
Launagreiðendum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er skylt að tilkynna sjóðnum á netskil@live.is ef þeim ber ekki lengur að standa skil á iðgjaldi eða félagsgjaldi þar sem þeir hafa hætt starfsemi, launþegi hættur eða skil eru ekki alla mánuði (óregluleg skil) hjá launagreiðanda eða launþega.
Séreignarsparnaður
Í flestum kjarasamningum er ákvæði um 2% mótframlag launagreiðenda í séreignarsjóð launþega sem þýðir að þeir sem spara 2 - 4% af launum fá þá 2% í mótframlag frá launagreiðanda.
Algengar spurningar um iðgjaldaskil
Hverjum ber að greiða lágmarksiðgjald til LV?
Hvað greiða sjálfstætt starfandi, einyrkjar og verktakar hátt iðgjald?
1. janúar 2023 tóku gildi breytingar á lögum og lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð hækkaði úr 12% í 15,5% hjá öllum launþegum og öllum sjálfstætt starfandi. Sú hækkun gildir einnig fyrir einyrkja, verktaka og sjálfstætt starfandi.
Nánari upplýsingar má finna á vef Alþingis.
Hvenær er fyrsta greiðsla?
Mánuðinn eftir að launþegi verður 16 ára ber að skila iðgjöldum í lífeyrissjóð.
Hvenær er síðasta greiðsla í lífeyrissjóð?
Síðasta greiðsla í sjóðinn er sama mánuð og sjóðfélagi verður 70 ára. Athugið að sjóðfélagi getur verið byrjaður að fá greiddan lífeyri en heldur áfram að ávinna sér lífeyrisréttindi af launatekjum til 70 ára aldurs. Eftir það greiðir launþegi ekki lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð.
Hvernig og hvert borga ég iðgjöldin?
Þú greiðir kröfu sem myndast í netbanka (eftir sendingu skilagreinar)
Þú leggur inn á reikning 515-26-1007 kt. 430269-4459
Hvernig fæ ég skuldleysisvottorð?
Sendu póst á live@live.is til að óska eftir skuldleysisvottorði fyrir þitt fyrirtæki.
Gjalddagi og eindagi iðgjalda
Gjalddagi er 10. dagur næsta mánaðar
Dæmi: Iðgjöld vegna launa í október eru með gjalddaga 10. nóvember.
Eindagi - síðasti bankadagur næsta mánaðar
Dæmi: Iðgjöld vegna launa í október eru með eindaga síðasta bankadag í nóvember.
Berist greiðsla ekki innan þess mánaðar eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.
Innheimtuferlið
Innheimtuferli hefst ef iðgjöld eru ógreidd á eindaga.
Áminning er send 15. dag fyrsta mánaðar eftir eindaga, þar sem gefinn er 15 daga frestur.
Lokaaðvörun er send 10. dag annars mánaðar eftir eindaga, þar sem gefinn er 14 daga frestur.
Málið er sent lögfræðingi til innheimtu í þriðja mánuði eftir eindaga.
Dæmi ef ágúst er í vanskilum:
- Gjalddagi er 10. september.
- Eindagi er 30. september.
- Aðvörun send 15. október með fresti til 30. október.
- Lokaaðvörun send 10. nóvember með fresti til 24. nóvember.
- Málið sent til innheimtu í desember.
Eftirlit Ríkisskattstjóra
Ríkisskattstjóri safnar upplýsingum um iðgjaldsskyld laun og skil iðgjalda til lífeyrissjóða í kjölfar hvers árs. Þetta er gert með samanburði á upplýsingum af launamiðum, skattframtölum og iðgjaldaskilum til lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðum ber að innheimta vangoldin iðgjöld á grundvelli upplýsinga frá Ríkisskattstjóra að viðbættum dráttarvöxtum.
Nánari upplýsingar má finna á vef Ríkisskattstjóra.
2024 í hnotskurn
Launagreiðendur
10,8 þúsund
Greidd iðgjöld
50 milljarðar króna
Lífeyrisgreiðslur
40,3 milljarðar króna
Símtöl
26.912