Lífeyrissjóður verzlunarmanna verður Lifa lífeyrissjóður
Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun taka upp nafnið Lifa lífeyrissjóður að fengnu samþykki aukaársfundar mánudaginn 16. nóvember.
29. okt. 2026
Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun taka upp nafnið Lifa lífeyrissjóður að fengnu samþykki aukaársfundar mánudaginn 16. nóvember.
29. okt. 2026
Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun taka upp nafnið Lifa lífeyrissjóður að fengnu samþykki aukaársfundar mánudaginn 16. nóvember.
Lifa er fyrst og fremst hugsað sem eðlileg þróun heitis sjóðsins, þar sem styttingin Live var orðin ráðandi. Lifa er fallegt íslenskt heiti með merkingu sem tengir beint við hlutverk okkar, að vera til staðar - fyrir lífstíð. Í nafninu er nafnháttur sagnarinnar að lifa gerður að sérnafni.
Lífið tekur á sig ólíkar myndir á ólíkum æviskeiðum og þar viljum við vera til staðar - á mikilvægum tímamótum, frá upphafi starfsævinnar og alla tíð.
Nýja nafnið endurspeglar framtíðarsýn sjóðsins og þann fjölbreytta hóp sjóðfélaga sem hann þjónar.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna á sér langa sögu og hefur gætt að lífeyri Íslendinga í 70 ár auk þess að vera einn stærsti langtímafjárfestir landsins. Á þessum tímamótum horfum við fram á veginn til næstu áratuga. Samsetning sjóðfélaga hefur breyst mikið og koma þeir nú úr fjölbreyttum starfsgreinum, ekki eingöngu úr röðum verslunarmanna.
„Lifa snýst um lífið sem þú lifir í dag og lífið sem þú vilt geta lifað síðar. Hlutverk okkar er að byggja upp fjárhagslegt öryggi sjóðfélaga til framtíðar og veita mikilvæga vernd ef óvænt áföll verða. Lifa endurspeglar þannig að lífeyrismál snúast ekki aðeins um eftirlaunaárin, heldur um lífsgæði og öryggi alla ævi,“ segir Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri sjóðsins.
Nafnabreytingin byggir á ítarlegri greiningu og vandaðri vinnu fagaðila.
Samhliða nafnabreytingunni tekur sjóðurinn upp nýtt merki sem styður við áherslur hans. Nýja merkið myndar bókstafinn L og samanstendur af formum sem breiða úr sér líkt og ljósgeislar, með einn sameiginlegan upphafspunkt. Það byggir á hugmyndinni um lífið og öll þau ólíku augnablik sem móta tilveruna okkar með nýjum leiðum og nýjum tækifærum. Merkið endurspeglar einnig hlutverk sjóðsins sem trausts lífsförunautar sem fylgir sjóðfélögum í gegnum lífið og styður við fjárhagslegt öryggi þeirra. Ásýndin sameinar traustan grunn langrar sögu sjóðsins og bjarta framtíðarsýn.
Sjóðurinn er sá sami og starfar á sömu kennitölu. Öll þjónusta er óbreytt. Öðrum spurningum sem gætu vaknað er svarað hér að neðan.
Stjórn sjóðsins hefur samþykkt nafnabreytinguna og verður hún lögð fyrir aukaársfund, sem haldinn verður mánudaginn 16. nóvember á degi íslenskrar tungu á Hilton hótel Reykjavík. Nýtt nafn tekur gildi að lokinni staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Lifa er fyrst og fremst hugsað sem eðlileg þróun heitis sjóðsins, þar sem styttingin Live var orðin ráðandi. Lifa er fallegt íslenskt heiti með merkingu sem tengir beint við hlutverk okkar, að vera til staðar - fyrir lífstíð.
Lífið tekur á sig ólíkar myndir á ólíkum æviskeiðum og þar viljum við vera til staðar - á mikilvægum tímamótum, frá upphafi starfsævinnar og alla tíð.
Lifa horfir til framtíðar og færir áhersluna frá lífeyrinum einum yfir á lífið sjálft og þau tækifæri sem fjárhagslegt öryggi getur skapað.
Nýja nafnið endurspeglar framtíðarsýn sjóðsins og þann fjölbreytta hóp sjóðfélaga sem hann þjónar.
Lífeyrissjóðurinn tekur upp nafnið að fengnu samþykki aukaársfundar 16. nóvember og að lokinni staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Sjóðfélagar þurfa ekki að gera neitt og hefur nafnabreytingin engin áhrif á þjónustu, réttindi eða greiðslur. Sjóðurinn er sá sami og starfar á sömu kennitölu.
Haft verður samband við helstu þjónustuaðila launakerfa þegar breytingin er gengin í gegn og óskað eftir því að nafninu verði breytt í kerfum. Við hvetjum aðra til að uppfæra nafnið í sínum kerfum við fyrsta tækifæri ef þau uppfærast óreglulega.
Netföng og vefsíða koma til með að uppfærast í kjölfar staðfestingar ráðuneytis. Netföng og vefslóðin live.is verða áfram virk og framsenda skilaboð á ný netföng.
Áætlað er að kostnaður geti numið allt að 28 milljónum króna. Þar undir falla meðal annars greiningar- og ráðgjafarvinna fagaðila, hönnun merkis og ásýndar, uppfærsla á vef sjóðsins og merkingar. Leitast verður við að halda kostnaði í lágmarki.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er 70 ára, stofnaður árið 1956. Stofnun hans átti rætur í kjarasamningi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og atvinnurekenda frá 1955. Í dag starfa 69 manns hjá sjóðnum.
Árið 2025 greiddi sjóðurinn yfir 45 milljarða í lífeyri til um 29 þúsund sjóðfélaga. Fjármunir sjóðfélaga eru ávaxtaðir með gagnsæjum og ábyrgum hætti með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Eignasöfnin fimm námu yfir 1.566 milljörðum króna í árslok 2025.
Auk ævilangs lífeyris og tryggingaverndar vegna heilsubrests eða fráfalls býður sjóðurinn fjórar ávöxtunarleiðir í séreign og tilgreindri séreign auk húsnæðislána til sjóðfélaga.