Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Áfram á toppnum - íslenska lífeyriskerfið með A í einkunn

Íslenska lífeyriskerfið er áfram í fremstu röð á heimsvísu samkvæmt alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer og CFA Institute fyrir árið 2026.

Content A Grades Mcgpi Content A Grades Mcgpi

Samkvæmt frétt frá Landssamtökum lífeyrissjóða hefur íslenska lífeyriskerfið enn og aftur hlotið hæstu einkunn í árlegri úttekt Mercer og CFA Institute. 

Ísland er í þriðja sæti vísitölunnar af 55 ríkjum sem tekin voru til skoðunar og er meðal þeirra ríkja sem hljóta hæstu mögulegu einkunn. Úttektin nær til um 2/3 af íbúafjölda heimsins. 

Ísland fær A einkunn sem fyrr og einungis Holland og Danmörk hljóta fleiri stig. Samkvæmt skilgreiningu Mercer endurspeglar A-einkunn lífeyriskerfi sem veitir góð lífeyrisréttindi, býr yfir sterkri sjálfbærni  og nýtur trausts meðal sjóðfélaga.

Lífeyrisvísitalan metur lífeyriskerfi út frá þremur lykilþáttum sem mismunandi vægi í vísitölunni: 

  • 40% Fullnægjandi lífeyrir: að tryggja nægilegan lífeyri

  • 35% Sjálfbærni: að kerfið standi traustum fótum til framtíðar

  • 25% Traust:  að kerfið njóti trausts þeirra sem reiða sig á það.

Ísland hlaut A-einkunn í öllum þessum flokkum, sem undirstrikar styrk og stöðugleika íslenska lífeyriskerfisins.

Lífeyrisvísitala Mercer byggir á gögnum frá OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum alþjóðastofnunum auk upplýsinga sem sérfræðingar afla í hverju landi.  Vísitalan er ein sú virtasta á sínu sviði og veitir mikilvæga innsýn í stöðu, sjálfbærni og framtíðarþol lífeyriskerfa um allan heim.

Einkunnir allra landanna 55 sem úttekt Mercer nær til

Heildareinkunn allra landa sem úttektin nær til

Umfjöllun Mercer og skýrsla um úttektina