Þú setur allt (15,5%) í samtryggingu og byggir upp ævilangan lífeyri sem er greiddur alla ævi, ásamt því að þú tryggir þér hærri örorkulífeyri og maka þínum hærri makalífeyrir.
Gerðu þína lífeyrisáætlun hér á Mínum síðum.
1. Meira öryggi eða meiri sveigjanleiki?
Viltu hámarka ævilanga lífeyrinn eða meiri sveigjanleika með aukinni séreign?
Viltu meira öryggi?
Viltu meiri sveigjanleika?
Þú setur allt að 3,5% í tilgreinda séreign og restin fer í samtryggingu. Tilgreind séreign veitir meiri sveigjanleika við starfslok, hún er laus að fullu frá 67 ára og erfist eins og önnur séreign.
Gerðu þína lífeyrisáætlun hér á Mínum síðum.
Hvernig veit ég stöðuna mína?
Skráðu þig inn á Mínar síður á live.is og farðu í séreign og mín mál. Þar sérð þú hvort þú ert með samning um tilgreinda séreign.
Ef þú ert ekki með samning um tilgreinda séreign þá ert þú að setja allt (15,5%) í samtryggingu.
Ef þú ert með samning um tilgreinda séreign skoðaðu þá hversu hátt hlutfall (0-3,5%) þú ert að borga í tilgreinda séreign.
Hvernig breyti ég?
Þú getur gert breytingar á Mínum síðum á live.is.
Þar fyllir þú út samning og velur hversu hátt hlutfall (allt að 3,5%) fer í tilgreinda séreign.
2. Ertu með séreignarsparnað?
Viltu fá borgað fyrir að spara og auka líkurnar á að þú hafir það gott eftir vinnu?
Hverjir er kostir séreignarsparnaðar?
Þú getur valið að leggja fyrir 2-4% af laununum þínum og launagreiðandi bætir við 2%. Kostir séreignarsparnaðar eru:
- Þú færð 2% mótframlag frá launagreiðanda.
- Hægt er að nýta skattfrjálst við kaup á fyrstu íbúð.
- Laus til útgreiðslu frá 60 ára aldri.
- Erfist að fullu.
Hvernig veit ég hvort að ég sé með séreignarsparnað?
Byrjaðu á því að skoða launaseðilinn þinn en þar kemur fram í hvaða lífeyrissjóð og séreignarsjóð þú ert að greiða til.
Skráðu þig síðan inn á Mínar síður til að staðfesta að greiðslur séu að berast.
Ég er með séreignarsamning, hvað á ég að skoða?
- Vertu viss um að þú sért að greiða 4% í séreign.
- Vertu viss um að valin fjárfestingarleið sé sú leið sem hentar þér.
- Vertu viss um að greiðslur séu að skila sér í sjóðinn. Þú getur fylgst með því á Mínum síðum.
Ég er ekki með séreign, hvernig byrja ég?
Þú fyllir út séreignarsamning á Mínum síðum. Það tekur einungis 2 mín og við sjáum um að láta launagreiðandann þinn vita.
Hvernig breyti ég séreignarsamningnum mínum?
Á Mínum síðum á live.is getur þú skipt um launagreiðanda, breytt % í séreign og breytt um fjárfestingarleið.
3. Val á fjárfestingarleið
Það er að ýmsu að huga þegar velja á fjárfestingarleið fyrir séreignarsparnað. Taktu púlsinn og vertu viss um að valin leið sé í samræmi við þarfir og væntingar.
Við val á fjárfestingarleið er gott að spyrja sig:
Hversu langt er í að þú notar sparnaðinn?
- Ef langt er í úttekt getur það gefið meira svigrúm til að taka áhættu og takast á við sveiflur.
- Ef stutt er í úttekt kjósa margir meiri stöðugleika þar sem tíminn til að vinna upp sveiflur er styttri.
Hversu miklar sveiflur þolir þú?
Hærri ávöxtun til lengri tíma fylgir oft meiri sveiflum til skemmri tíma. Mikilvægt er að velja leið sem hentar, líka þegar markaðir sveiflast.
Hver er staðan þín í dag?
Tekjur, eignir og fjölskylduaðstæður geta haft áhrif á hvernig þú lítur á áhættu.
Hvert er markmiðið með sparnaðinum?
Sumir leggja meiri áherslu á öryggi, aðrir á stöðugleika eða langtímavöxt.
Við bjóðum upp á 3 fjárfestingarleiðir:
Ævileið I hentar þeim sem eru 54 ára og yngri.
Um helmingur safnsins er í hlutabréfum. Markmiðið er að skila góðri langtíma ávöxtun.
Ævileið II hentar þeim sem eru 55 ára og eldri.
Um fjórðung af safninu er í hlutabréfum. Markmiðið er að skila stöðugri ávöxtun með takmarkaðri áhættu.
Ævileið III hentar þeim sem eru byrjaðir að taka út sparnaðinn eða vilja lágmarka áhættu.
Safnið samanstendur af skuldabréfum og innlánum.
Þú getur valið Ævilínu, þar sem fjárfestingin færist sjálfkrafa milli leiða eftir aldri.
Hvernig veit ég í hvaða leið ég er?
Á Mínum síðum á live.is undir séreign - mín mál getur þú séð valda fjárfestingarleið.
Hvernig breyti ég um fjárfestingarleið?
Á Mínum síðum á live.is undir séreign mín mál getur þú breytt um fjárfestingarleið.