Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Sjálfstætt starfandi

Fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga er sérstaklega mikilvægt að huga að reglulegum greiðslum í lífeyrissjóð sem eru í takt við afkomuna. 

LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 6 0223 LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 6 0223

Mikilvæg atriði til að hafa í huga

Sjálfstætt starfandi einstaklingar þurfa að greiða í lífeyrissjóð eins og aðrir, þeir greiða bæði framlag launagreiðanda og launþega í lífeyrissjóð auk 0,10% framlags í endurhæfingarsjóð. 

Ekki gefa upp of lág laun

Það er vissulega umtalsvert að greiða bæði hlut launagreiðanda og launþega en hafðu í huga að réttindin sem þú ávinnur þér í ævilöngum lífeyri og áfallalífeyri er byggður á þeim iðgjöldum sem þú greiðir. Lægri laun þýða lægri iðgjöld og lægri ævilangur lífeyrir og áfallalífeyrir ef áföll dynja á. 

Greiddu iðgjöldin mánaðarlega

Greiddu á réttum tíma til að spara þér dráttarvexti en ekki síst vegna þess að annars áttu á hættu að missa réttindi til  áfallalífeyris. Ef þú greiðir reglulega og lendir í alvarlegu slysi eða sjúkdómi og missir starfsorkuna, þá er bætt við réttindi þín eins og þú hefðir haldið áfram að greiða í sjóðinn til 65 ára aldurs. Þetta kallast framreikningur og er afar dýrmæt tryggingavernd.

Forðastu vanskil

Ekki er tekið tillit til ógreiddra iðgjalda vegna áfallalífeyris ef eitthvað hendir þig. 

Nýttu þér séreignarsparnað

Ekki hika við að nýta þér séreignarsparnað. Kostir þessa sparnaðarforms eru margir og rík ástæða til að nýta sér þá hagkvæmu sparnaðarleið: 

  • Þú eignast 2% mótframlag, skattfrjálst. 
  • Hægt er að ráðstafa sparnaði inn á fasteignalán, skattfrjálst.
  • Séreignarsparnaður er þín eign sem erfist samkvæmt erfðalögum.
  • Umtalsvert skattahagræði þar sem þú greiðir ekki skatt af upphæðinni sem þú leggur fyrir fyrr en við úttekt.
  • Mikill sveigjanleiki því þú getur tekið út í heild eða hluta frá 60 ára aldri.
  • Séreign er ekki aðfararhæf.
  • Áhrif á útborguð laun eru lítil en mikil á sparnað. 

Meiri séreign

Samkvæmt lögum um tekjuskatt getur launagreiðandi greitt allt að tveimur milljónum króna aukalega á ári í séreign fyrir launþega umfram 12% iðgjald. 

Fyrir sjálfstæðan atvinnurekenda sem hefur lítinn séreignarsparnað getur verið góður kostur að auka sparnað sinn í séreign. Mögulegur ávinningur gæti verið meðal annars;

  • lægra skattþrep launþegans 
  • lægri launatengd gjöld launagreiðanda 
  • frestun skattgreiðslna launþega 
  • eign myndast sem er ekki aðfararhæf  
  • sveigjanleg úttekt séreignar frá 60 ára aldri. 

Sækja um séreignarsparnað

Þú getur ráðstafað allt að 9,5% af launum í séreign hjá okkur. Gerðu samning strax í dag og byrjaðu að spara í sjóð til eftirlaunaáranna, til að greiða niður höfuðstól húsnæðisláns eða sem útborgun í fyrstu íbúð.

Veldu umsókn

Error
Umsókn