Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Makamissir

Makamissir hefur óhjákvæmilega miklar breytingar í för með sér. Makalífeyrir er mikilvægur þáttur í fjárhagslegu öryggi fjölskyldunnar við slíkar aðstæður.

LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 3 0923 LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 3 0923

Hvað er makalífeyrir?

Við fráfall fer hluti réttinda sjóðfélagans til maka hans og barna. Makalífeyrir er greiddur í að lágmarki fimm ár og einnig þar til yngsta barn verður 23 ára, auk barnalífeyris til 20 ára aldurs barns.

Þarf ég að sækja um ?

Já, nauðsynlegt er að sækja um makalífeyri með rafrænni umsókn. Ef ekki hefur verið sótt um makalífeyri innan tveggja mánaða frá því að tilkynning berst til þjóðskrár um andlátið sendum við bréf til eftirlifandi maka til að minna á umsóknina. 

Ef þið eigið börn eða kjörbörn undir 20 ára aldri þá gæti jafnframt verið réttur til barnalífeyris.

Maka- og barnalífeyrir

Kynntu þér nánar maka- og barnalífeyri sem er hluti áfallaverndar sjóðfélaga og fjölskyldu þeirra.

Veldu umsókn

Error
Umsókn

Séreign sem erfist

Hafi maki átt séreignarsparnað þarf að kanna til hvaða vörsluaðila greitt var. Margir eiga inneign á fleiri en einum stað. Því miður er ekki til eitt yfirlit yfir inneign hjá öllum vörsluaðilum og þarf því að kanna inneign hjá hverjum og einum þeirra. 

Þegar maki á séreign hjá okkur þarf að skila inn yfirliti yfir framvindu skipta því séreign skiptist samkvæmt hjúskapar- og erfðalögum. Ef yfirlit yfir framvindu skipta skilar sér ekki til okkar þá pöntum við það frá sýslumanni og sendum bréf til erfingja til upplýsingar.

  • Inneign er færð á erfingja og kallast erfðaséreign, maki fær ⅔ og börn ⅓.
  • Ef ekki er maki skiptist séreignin jafnt milli barna.
  • Ef maki eða börn eru ekki fyrir hendi rennur inneignin til dánarbúsins.
  • Erfðaséreign er hægt að taka út strax eða ávaxta hana hjá sjóðnum.
  • Ekki er greiddur erfðafjárskattur af inneign maka og barna en tekjuskattur er greiddur við úttekt. 
  • Ekki er hægt að nýta erfðaséreign inn á lán vegna íbúðarkaupa.

Aðstoð vegna greiðsluerfiðleika

Hafir þú eða maki þinn verið lántakendur hjá sjóðnum er gott fyrir þig að vita að sjóðurinn býður ýmsar leiðir til að mæta tímabundnum greiðsluerfiðleikum vegna breytinga á aðstæðum sjóðfélaga.

Maka Og Barnalífeyri

Kannaðu rétt þinn hjá ráðgjöfum sjóðsins ef þú ert í vafa

Makalífeyri eiga fleiri rétt á en þeir sem hafa verið giftir, til dæmis þeir sem hafa verið í sambúð sem hefur varað í tvö ár fram að andláti. 

Hafa samband