Um sjóðinn
Lífeyrissjóður verzlunarmanna var stofnaður þann 1. febrúar 1956. Stofnun hans kom til á grundvelli kjarasamnings sem gerður var 27. maí 1955. Með stofnun sjóðsins var tekið veigamikið skref í tryggingarmálum verslunarfólks, sem hafði búið við mjög skertan hlut í þessum efnum, eins og flestir aðrir landsmenn. Til þessa tíma höfðu einkum opinberir starfsmenn notið þessara trygginga.
Hlutverk LV
LV er tryggingarsjóður. Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri.

Kynningarmyndband Live