Um sjóðinn
Fréttir

Mikill ávinningur af starfsendurhæfingu

12. jan. 2012

  • Virk

Vænta má mikils fjárhagslegs ávinnings af starfsendurhæfingu sem skilar þeim árangri að viðkomandi einstaklingur er að fullu virkur á vinnumarkaði í stað þess að fara á örorkulífeyri. Þetta má álykta af útreikningum sem VIRK Starfsendurhæfingarsjóður lét vinna um þennan fjárhagslega ávinning.

Dæmi um þennan ávinning er að finna á heimasíðu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, unnin af ráðgjafarfyrirtækinu Talnakönnun.

Nánar er gerð grein fyrir niðurstöðunum þar, en þótt einungis sé um að ræða fá einföld dæmi má draga af þeim ályktanir um ávinninginn. Hafa verður þó í huga að hvert tilvik er einstakt og tilbrigðin eru óteljandi. Ætla verður þó að dæmin gefi all góða vísbendingu um hvers sé að vænta þegar árangur næst, hvort sem er að fullu eða að hluta.

Lífeyrissjóðunum  ber að greiða 0,13% af iðgjaldastofni sínum til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, um það bil einn milljarð króna á ári. Að auki greiða launagreiðendur sama hlutfall af launum til sjóðsins. Réttlæting þess, að inna af hendi þessar greiðslur er sú trú að með starfsendurhæfingu létti greiðslum örorkulífeyris af sjóðunum, þar sem þeirra verði ekki þörf í jafn ríkum mæli og annars yrði. Þessir útreikningar Talnakönnunar benda til þess, að sú verði raunin. Til viðbótar þessum fjárhaglega ávinningi kemur svo ávinningur sem ekki verður metin beint til fjár, aukin lífsgæði þeirra einstaklinga sem hér um ræðir. 

 

 


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica