Fréttir
Fjárfestingastefna 2012
Stjórn LV hefur nýlega samþykkt fjárfestingastefnu sjóðsins vegna ársins 2012 og er hún grundvölluð á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og samþykktum sjóðsins.
LV er fagfjárfestir sem hefur að höfuðmarkmiði að hámarka eignir og réttindi sjóðfélaganna og skal það sjónarmið lagt til grundvallar við fjárfestingar og eignastýringu á verðbréfasafni sjóðsins. Fjármagn sjóðsins skal ávaxtað með hliðsjón af þeim kjörum, sem best eru boðin á hverjum tíma, að teknu tilliti til varúðarsjónarmiða, áhættu og verðtryggðra langtímaskuldbindinga sjóðsins.
Sjá má fjárfestingastefnuna í heild sinni hér.
Jafnframt er hún aðgengileg á vef sjóðsins.

