Hörð gagnrýni á skattlagningarfrumvörp
Landssamtök lífeyrissjóða (LL) gagnrýna harðlega áform um skattlagningu lífeyrissjóða og um lækkun frádráttarbærs iðgjalds í séreignarlífeyrissparnað. Þetta kemur fram í umsögnum Landssamtakanna til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um frumvörp um fjársýsluskatt og um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Um er að ræða stjórnarfrumvörp sem fylgja fjárlagafrumvarpinu og má búast við að verði afgreidd fyrir jólahlé Alþingis. Megininntakið í gagnrýni LL varðandi það að leggja fyrirhugaðan fjársýsluskatt á lífeyrissjóði er að rökin, sem færð eru fyrir skattlagningunni í frumvarpinu, eigi alls ekki við um lífeyrissjóði og að skatturinn muni auka á ójöfnuð milli sjóðfélaga hins almenna lífeyriskerfis og í opinberu sjóðunum. Hér verður til upplýsingar gerð nánari grein fyrir umsögn LL um áformaðan fjársýsluskatt.
Frumvarp til laga um fjársýsluskatt kveður á um nýjan skatt sem ætlað er að leggist á allar tegundir launa og þóknana fjármálafyrirtækja, vátryggingarfélaga og lífeyrissjóða.
Í skýringum með frumvarpinu segir svo um umfang þessarar skattlagningar: “Lagður verði 10,5% fjársýsluskattur á heildarlaunagreiðslur fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga. Tekjur af þessum nýja skatti eru taldar verða 4,5 milljarðar kr. á árinu 2012.”
Engin rök fyrir skattlagningu lífeyrissjóðanna
Landssamtök lífeyrissjóða hafa, í umsögn sinni um frumvarpið, ýmislegt við þessi áform um skattlagningu lífeyrissjóðanna að athuga. Fyrst það, að rökin fyrir skattlagningunni, sem tilgreind eru í athugasemdum með frumvarpinu, eigi alls ekki við um lífeyrissjóði. „Skattlagningu þessari er því harðlega mótmælt og þá einkum því að honum [skattinum] sé ætlað að ná til lífeyrissjóða þrátt fyrir að engin rök standi þar að baki,“ segir í umsögn LL.
Í frumvarpinu eru færð þau rök fyrir skattlagningunni að fjármálafyrirtæki beri hlutfallslega minni skatta en aðrar atvinnugreinar, meðal annars vegna undanþágu þeirra frá álagningu virðisaukaskatts, skattinum sé þannig ætlað að skapa meira skattalegt jafnræði á milli atvinnugreina. Um þetta segir í umsögn LL að á Íslandi sé skyldubundið lífeyriskerfi sem hafi af stjórnvöldum verið talið vera hluti af samtryggingarkerfi landsmanna. „Lífeyrissjóðir hafa það hlutverk að móttaka, varðveita og ávaxta iðgjöld og greiða lífeyri, sbr. nánar 20. gr. laga nr. 129/1997. Aðra starfsemi mega lífeyrissjóðir ekki hafa með höndum og er því örðugt að tengja framangreind rök við lífeyrissjóði sem hafa með höndum lögfest og skyldubundið sparnaðarkerfi landsmanna sem ætlað er til greiðslu lífeyris. Lífeyrissjóðir fara ekki með þau verkefni sem unnt er að tengja við þá starfsemi sem almennt ber virðisaukaskatt enda er í athugasemdum frumvarpsins hvergi minnst á starfsemi lífeyrissjóða. Aðeins er tilgreint að skattskyldan sé víðtæk og taki til allra lífeyrissjóða án nokkurrar frekari röksemdafærslu. Þau rök sem talin eru til stuðnings skattlagningunni hafa ekkert með starfsemi lífeyrissjóða að gera og eiga því á engan hátt við um þá.“
Ólíku saman að jafna
Í frumvarpinu er ítrekað skírskotað til fyrirmyndar í Danmörku. Landssamtökin benda í því sambandi á að ekki liggi fyrir að danska lífeyrissjóðakerfið sé sambærilegt við hið íslenska, sem er lögbundið skyldusamtryggingarkerfi. Þar sé því ólíku saman að jafna og ekki sé unnt að sækja fyrirmynd að sérstökum fjársýsluskatti á lífeyrissjóði hér á landi til Danmerkur.
Loks segir í umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða: „Að lokum þykir rétt að vekja sérstaka athygli á því misræmi að vilji svo ólíklega til að skattlagning þessi verði látin ná til lífeyrissjóða mun það aðeins hafa áhrif á réttindi sjóðfélaga í almennu lífeyrissjóðunum en ekki á réttindi sjóðfélaga í opinberu sjóðunum. Breytingar sem þessar kæmu því til með að auka þann mun sem ríkir milli þessara kerfa en það er í hrópandi andstöðu við þær yfirlýsingar sem núverandi ríkisstjórn hefur gefið um jöfnun innan lífeyriskerfisins. Háttvirtur fjármálaráðherra hefur á þinginu m.a. lýst því yfir að þáttur lífeyrissjóðanna sé óverulegur og lítill í þessari skattlagningu. Ætti því að liggja beint við að hlífa lífeyrissjóðunum við henni enda væri það til samræmis við þegar gefnar yfirlýsingar um að samræma stöðu sjóðfélaga.“
Skoða má frumvarpið í heild hér
Umsögn LL má skoða í heild hér

