Fréttir
NÝTT – Viltu vera upplýstur sjóðfélagi?
Með nýjum vef sjóðsins býðst sjóðfélögum nú að skrá sig á póstlista LV. Ef þú skráir þig á póstlista sjóðsins færðu nýjustu fréttir og fræðsluefni sjóðsins sent í tölvupósti.
Í framhaldi af stefnumótunarvinnu, var ákveðið að auka upplýsingaflæði og fræðslu til sjóðfélaga. Stór liður í þessu er að gera sjóðfélögum kleift að nálgast upplýsingar, fréttir og fróðleik á auðveldan hátt á heimasíðu sjóðsins og með því að skrá sig í áskrift á póstlista sjóðsins.
Áskrifendur póstlistans ættu ávallt að vera vel upplýstir um helstu nýmæli í starfsemi hans, auk þess að fræðast um réttindi sjóðfélaga LV svo eitthvað sé nefnt.
Hér geturðu skráð þig á póstlista LV.

