Nýr vefur LV
Þriðjudaginn 8. júní 2010 var opnaður nýr vefur sjóðsins. Þetta er hluti af stefnumótunarvinnu sjóðsins, en þar er lögð áhersla á bætt aðgengi upplýsinga og aukið gagnsæi.
Betra aðgengi að upplýsingum
Aukið gagnsæi
Nýjar reiknivélar
Hannaðar hafa verið nýjar reiknivélar fyrir útreikning á greiðslubyrði lána og mögulegum lífeyrisgreiðslum. Þessar nýju reiknivélar eiga að gefa betri sýn á útkomuna með myndrænni framsetningu.
Aukin þjónusta
Nýi vefurinn býður upp á að sótt sé um notandanafn og lykilorð fyrir sjóðfélaga- og fyrirtækjavefinn á vefnum sjálfum. Þessar upplýsingar birtast jafn óðum í netbanka viðkomandi.
Auk þessa er nú hægt að sækja um ævilangan lífeyri og makalífeyri með því að fylla út form á vefnum og senda beint til sjóðsins. Einnig er hægt að sækja um útgreiðslu séreignarsparnaðar á sama hátt.
