Vegna fréttar Bylgjunnar í hádeginu, 4. febrúar 2012, vill Lífeyrissjóður verzlunarmanna taka eftirfarandi fram: Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) hafnar afdráttarlaust þeim vangaveltum sem fram hafa komið um að sjóðurinn, ásamt öðrum lífeyrissjóðum, hafi brotið lög með gerð gjaldmiðlavarnarsamninga.
Lesa meira
Lífeyrissjóður verzlunarmanna fagnar útkomu skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða. Skýrsla nefndarinnar er viðamikil og mikið safn heimilda og upplýsinga um lífeyrissjóðina, jafnt einstaka sjóði sem lífeyriskerfið í heild sinni. Svo efnismikil skýrsla krefst augljóslega tíma til að meðtaka efni hennar og leggja á það mat. Sjóðfélögum til upplýsingar skal þó bent á eftirfarandi
Lesa meiraStjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fól í dag lögmönnum hagsmunagæslu vegna ágreinings við slitastjórnir Glitnis banka hf. annars vegar og Kaupþings banka hf. hins vegar vegna uppgjörs gjaldmiðlavarnarsamninga. Þrátt fyrir að í rúm þrjú ár hafi verið leitað samkomulags um lausn þessa ágreinings hefur ekki tekist að ná niðurstöðu. Allra leiða verður leitað, með eða án atbeina dómstóla, til að tryggja best hagsmuni sjóðfélaga.
Lesa meira
Vænta má mikils fjárhagslegs ávinnings af starfsendurhæfingu sem skilar þeim árangri að viðkomandi einstaklingur er að fullu virkur á vinnumarkaði í stað þess að fara á örorkulífeyri. Þetta má álykta af útreikningum sem VIRK Starfsendurhæfingarsjóður lét vinna um þennan fjárhagslega ávinning.
Lesa meira