Beint í leiðarkerfi vefsins.
Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.
Heimilt er að greiða út 6.250.000 kr. með jöfnum mánaðarlegum greiðslum í 15 mánuði að frádreginni staðgreiðslu skatta. Útgreiðslutími styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð en 6.250.000 kr. er að ræða. Greiðslur sem greiddar hafa verið út skv. eldri heimildum dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út. Eigi sjóðfélagi séreignarsparnað hjá fleiri en einum vörsluaðila skal gera grein fyrir því hér að neðan. Sjóðurinn mun leita heimildar til útgreiðslu hjá ríkisskattstjóra áður en greiðslur hefjast.
Staðgreiða skal skatt af lífeyrisgreiðslum eins og um venjulegar launagreiðslur væri að ræða. Það er á ábyrgð sjóðfélaga að láta sjóðinn vita í hvaða skattþrepi skattgreiðslur eiga að vera.
Hægt er að setja í reitinn “Aðrar mánaðarlegar tekjur” heildar mánaðarlaun frá öðrum launagreiðendum eða merkja við viðeigandi skattþrep.
Til þess að persónuafsláttur nýtist þarf skattkort að vera fyrir hendi hjá lífeyrissjóðnum.