Ávöxtunarleiðir séreignar
Sjóðurinn býður upp á tvær fjárfestingarleiðir í séreignarsparnaði. Þær eru verðbréfaleið og innlánsleið.
Verðbréfaleið
Verðbréfaleið séreignardeildarinnar er ávöxtuð samhliða eignum almennu deildar sjóðsins.
Eignasamsetning þessarar leiðar er dreifð samkvæmt fjárfestingarstefnu sjóðsins hverju sinni.
Á fjárfestingarhluta vefsins er hægt að fá greinargóðar upplýsingar um ávöxtun og eignasamsetningu á verðbréfaleiðinni.
| Eignasamsetning 31. desember 2010 |
|
|---|---|
|
![]() |
Innlánsleið
Vakin er athygli á nýlegri ávöxtunarleið í séreignarsparnaði hjá sjóðnum, svokallaðri innlánsleið. Í innlánsleið er lögð áhersla á að ávaxta séreignariðgjöldin á verðtryggðum innlánsreikningum banka og sparisjóða. Ávöxtun innlánsleiðar á árinu 2010 var 5,8% sem samsvarar 3,1% raunávöxtun.
Innlánsleið er helst ætluð þeim sem hafa hafið úttekt lífeyrissparnaðar eða gera ráð fyrir því að hefja úttekt hans innan fárra ára.
Vilt þú skipta um fjárfestingarleið?

