Séreign
Ávinningur

Ávinningur af séreignarsparnaði

Ávinningur af séreignarsparnaði er áþreifanlegur og mikil hvatning fyrir launþega að nýta sér þennan möguleika til aukins lífeyrissparnaðar.

Hverjir eru kostirnir?

Skattahagræði

Ef þú greiðir 2% í séreignarsparnað á mánuði er ekki tekinn skattur af þeim greiðslum. Þannig lækka skattgreiðslur þínar í hverjum mánuði sem því nemur.

Tökum dæmi af aðila sem er með 150.000 kr. í mánaðarlaun.


2%
Mánl. framlag í séreignarsparnað 3.000
Skattalækkun á mánuði 1.120
Skattalækkun á ári 13.440

Á sama tíma og lægra hlutfall launa þinna fer í skatt ertu að tryggja þér betra líf síðar á ævinni.  Þar  er ekki eingöngu um að ræða framlag þitt heldur einnig mótframlag atvinnuveitanda þíns.

Hagstæðasta sparnarleiðin í dag

Hvað er það sem gerir þessa sparnaðarleið svona hagstæða?

  • Skattahagræði:
    Skattahagræðið er augljóst; allt að 4% viðbótariðgjald af launum er ekki skattlagt við innborgun. Greiðslur úr lífeyrissjóðum eru skattlagðar eins og aðrar tekjur en lífeyrisþegar geta nýtt persónuafslátt sinn til þess að lækka skattana þegar þar að kemur.
  • Framlag launagreiðanda:
    Vinnuveitandi/launagreiðandinn bætir 2% mótframlagi við lífeyrissparnaðinn.
  • Enginn fjármagnstekjuskattur:
    Ekki þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af vaxtatekjum inneignar í séreignarsjóði.
  • Engin áhrif á vaxta- eða barnabætur:
    Inneign í lífeyrissjóði er ekki framtalsskyld og hefur því ekki áhrif á lækkun vaxtabóta eða barnabóta.
  • Vörn gegn skuldheimtumönnum:
    Inneign í lífeyrissjóði er varin gegn skuldheimtumönnum þannig að ekki er hægt að ganga að henni þótt viðkomandi lendi í fjárhagserfiðleikum eða gjaldþroti.

Viðbótarframlag frá launagreiðandanum

Í kjarasamningum er ákvæði um 2% mótframlag launagreiðenda í séreignarsjóð launþega sem þýðir að þeir sem spara 2% af launum fá 2% í mótframlag frá launagreiðanda.


Þetta getur ekki verið einfaldara, en um leið þrefaldar þú framlag þitt


Séreignariðgjald af launum 2%*
Sparnaður af 150.000 kr. mánaðarlaunum 3.000
Skattar lækka um 1.120
Raunverulegt framlag 1.880
Mótframlag launagreiðanda 3.000
Inneign í séreignarsjóði 6.000

* Fyrir hverjar 100 kr. sem þú sparar færð þú 219 kr. í formi skattahagræðis og mótframlags frá launagreiðanda. Hefur þú efni á að hafna slíku boði ?  Miðað er við lægsta skattþrep, 37,34%

  
Launþegar og sjálfstætt starfandi einstaklingar geta greitt allt að 6% af heildarlaunum sínum í séreignarsjóð áður en skattur er reiknaður á laun.

Séreignarsparnaður er sparnaðartækifæri sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.



Séreignarsparnaður er frjáls og hverjum og einum er í sjálfsvald sett hvort hann nýtir sér þennan möguleika til aukins lífeyrissparnaðar.

Þeir sem ákveða að nýta sér ekki þetta ákvæði eru þá að missa af mótframlagi launagreiðanda og ríkisins og eru í rauninni að missa af umsömdum kjarabótum.

Dæmi um ávinning

Tölurnar tala sínu máli eins og sést í töflunni hér að neðan. Eftirfarandi forsendur voru fyrir þessum útreikningi:

  • Laun á mánuði: 150.000 kr.
  • Lægsta skattþrep:  37,34%
  • Framlag launþegans: 2%
  • Framlag launagreiðandans: 2%
  • Áætluð ávöxtun: 5% raunávöxtun.
Sparnaðartími Höfuðstóll Mánaðargreiðslur í 7 ár*
20 ár 2.434.827 kr. 34.287 kr.
30 ár 4.892.255 kr. 68.892 kr.
40 ár 8.895.148 kr. 125.260 kr.

*Þessar greiðslur koma til viðbótar greiðslum sem viðkomandi hefur áunnið sér úr sameignarsjóði.



 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica