Lífeyrisþegar
Almennar upplýsingar

Örorkulífeyrir

Almennar upplýsingar

Í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða eru settar grunnreglur um örorkulífeyri. Jafnframt er gert ráð fyrir því að nánari reglur  séu settar í samþykktum hvers lífeyrissjóðs. Reglurnar geta því verið nokkuð mismunandi frá einum sjóði til annars. Í samþykktum LV er að finna reglur um örorkulífeyri, forsendur fyrir rétti til örorkulífeyris og útreikningi hans.

Hver er réttur minn til örorkulífeyris?

Þú átt rétt á örorkulífeyri ef starfsgeta þín skerðist vegna sjúkdóma eða slyss þannig að skerðingin sé metin til a.m.k. 50% varanlegrar örorku af trúnaðarlækni sjóðsins.

Þú þarft að vera yngri en 67 ára og hafa greitt iðgjöld í lífeyrissjóð í samtals 24 mánuði fyrir þann atburð sem olli orkutapinu*. Réttur til örorkulífeyris fellur ekki niður þótt þú hættir iðgjaldagreiðslu.  Þetta gildir eingöngu ef þú hefur orðið fyrir tekjumissi vegna orkutapsins. Rétturinn miðast þá við þau réttindi sem þú hefur þegar áunnið þér.

Með öðrum orðum:

  • þú ert ófær um að gegna því starfi sem veitti þér aðild að sjóðnum
  • örorka þín er metin a.m.k. 50% varanleg
  • þú hefur orðið fyrir tekjumissi vegna örorkunnar
  • orkutap verður að hafa varað lengur en 6 mánuði
* Með orkutapi er átt við það slys eða sjúkdóm sem veldur skertri starfsgetu

Hvernig er skert starfsgeta metin?

Meginskilyrði fyrir rétti til örorkulífeyris er að þú hafir orðið fyrir orkutapi sem metið er til að minnsta kosti 50% varanlegrar örorku og verðir fyrir tekjumissi vegna þess.

Einnig er það skilyrði fyrir örorkulífeyri að orkutap hafi varað í a.m.k. sex mánuði.  

Örorkan er metin af trúnaðarlækni sjóðsins.  

Hverjar eru forsendur fyrir örorkumati?

Fyrstu þrjú árin eftir orkutap er miðað við getu þína til að gegna því starfi sem veitti þér aðild að sjóðnum. Eftir það er miðað við hæfni þína til að gegna almennum störfum.

Lífeyrissjóðnum er heimilt, að fengnu áliti trúnaðarlæknis, að setja það sem skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris að þú farir í endurhæfingu.

Er örorkumat endanlegt eða endurmetið síðar?

Endurmat á örorku skal fara fram á þriggja ára fresti eða oftar telji trúnaðarlæknir þess þörf. 

Örorkulífeyrir greiðist að hámarki til 67 ára aldurs.  Eftir það greiðist lífeyrir til æviloka.

Hver er fjárhæð örorkulífeyris?

Fjárhæð örorkulífeyris miðast við áunninn rétt þinn til ellilífeyris* margfölduðum með örorkuprósentu þinni. Að uppfylltum tilteknum skilyrðum ávinnur þú þér rétt til svokallaðs framreiknings örorkulífeyris sem hækkar almennt fjárhæð örorkulífeyris. 

Nánari útskýring á framreikningi er að finna í svari við  spurningunni "Hvað er framreikningur réttinda?" hér að neðan.

* Sbr. ákvæði 11. gr. samþykkta sjóðsins.

Hvaða upplýsingar þarf ég að veita sjóðnum vegna umsóknar um örorkulífeyri?

Ef þú sækir um örorkulífeyri, eða ert örorkulífeyrisþegi, ber þér að láta sjóðnum í té upplýsingar um heilsufar þitt og tekjur sem nauðsynlegar eru til þess að úrskurða um rétt þinn til örorkulífeyris. 

Hvert sný ég mér ef ég hef greitt í fleiri en einn lífeyrissjóð?

Meginreglan er að sækja skuli um örorkulífeyri hjá þeim sjóði sem þú greiddir síðast til við orkutap.  Ef þú hefur greitt í fleiri en einn sjóð síðustu þrjú ár fyrir orkutap getur verið um skiptan framreikning milli sjóða að ræða.

Er hámark á greiðslum örorkulífeyris?

Örorkulífeyri er ætlað að bæta fjárhagslegt tjón vegna orkutaps. Því gildir sú regla að samanlagður örorkulífeyrir og barnalífeyrir skuli aldrei vera hærri en sem nemur þeim tekjumissi sem þú hefur sannanlega orðið fyrir vegna örorkunnar.

Við mat á tekjumissi er tekið tillit til eftirfarandi greiðslna:

  • atvinnutekna þinna
  • lífeyris- og bótagreiðslna frá almannatryggingum
  • greiðslna frá öðrum lífeyrissjóðum
  • kjarasamningsbundinna tryggingabóta sem þú nýtur vegna örorkunnar

Umsækjandi um örorkulífeyri veitir sjóðnum upplýst samþykki til að afla upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra.  Einnig getur sjóðurinn krafist upplýsinga frá skattstofu og vinnuveitanda.

Við mat á því hvort tekjuskerðing hafi orðið vegna örorkunnar, eru þér úrskurðaðar viðmiðunartekjur, sem skulu vera meðaltal tekna þinna síðustu þrjú almanaksár fyrir orkutapið, verðbættar til úrskurðardags*.  Frá úrskurðardegi taka viðmiðunartekjurnar breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs.

* Sbr. lokamálsgrein gr. 13.5. og gr. 13.6. um framreikning í samþykktum sjóðsins.

Hvað er framreikningur réttinda?

Ef þú átt rétt á framreikningi færðu lífeyri sem þú hefðir áunnið þér til 65 ára aldurs, til viðbótar þeim örorkulífeyri sem byggir á áunnum réttindum. Við þann útreikning er miðað við meðaltal launa þinna þrjú* almanaksár fyrir orkutapið.

Jafnframt gildir sú mikilvæga regla að þú ávinnur þér áfram rétt til ellilífeyris eins og þú hefðir greitt iðgjöld til 65 ára aldurs.

Hver eru meginskilyrði fyrir framreikningi

Þú átt rétt til framreiknings örorkulífeyrisréttinda, samkvæmt nánari ákvæðum samþykkta sjóðsins, ef þú uppfyllir eftirfarandi þrjú skilyrði:

  • hefur greitt iðgjöld til sjóðsins í að lágmarki þrjú af undanförnum fjórum almanaksárum og að minnsta kosti 80.000** kr. hvert þessara þriggja ára
  • hefur greitt iðgjald til sjóðsins í að minnsta kosti sex mánuði á undanförnum tólf mánuðum
  • hefur ekki orðið fyrir orkutapi sem rekja má til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna

Hvaða ár er miðað við þegar framreikningur er reiknaður út?

Réttindi reiknast að fullu vegna þeirra 30 ára sem hagstæðust eru fyrir sjóðfélagann, þ.e. vegna þeirra ára sem iðgjaldagreiðslur eru hæstar, en að hálfu fyrir önnur ár. Örorkulífeyrir er þó aldrei lægri en sem nemur áunnum réttindum***.

* Í grein 13.6 í samþykktum sjóðsins kemur fram að reynist þriggja ára meðaltal sjóðfélagans samkvæmt þriggja ára reglunni (sbr. gr. 13.5) óhagstætt vegna sjúkdóma eða atvinnuleysis, er stjórn sjóðsins heimilt að leggja til grundvallar meðaltal réttinda fleiri ára aftur í tímann og sleppa því almanaksári, sem lakast er. Hafi sjóðfélagi haft skerta almenna starfsorku fyrir þann tíma, er hann hóf iðgjaldagreiðslur til sjóðsins og meta má þá starfsorkuskerðingu 50% eða meiri, skal reikna meðaltal réttinda hans öll þau almanaksár, sem hann hefur greitt iðgjöld. Skal miða framreikning við þetta meðaltal.

**  80.000 kr. er grunnupphæð og skal verðbætt í byrjun hvers árs skv. vísitölu neysluverðs, miðað við grunnvísitölu 230, sbr. gr. 16.8 í samþykktum sjóðsins.

*** Sjá nánar í grein 11.2 og 11.17.

Hvernig virkar framreikningur lífeyrisréttinda?

Þessari spurningu verður best svarað með dæmi og skýringarmynd.

Framreikningur lífeyrisréttindaMyndin tekur mið af sjóðfélaga sem greiðir 12% iðgjald til sjóðsins af 200.000 kr. launum. Verði hann 100%  öryrki við 32 ára aldur hefur hann áunnið sér í lífeyri 43.147 kr. Að öðru óbreyttu ætti hann því rétt á þeirri fjárhæð í örorkulífeyri til 67 ára aldurs og samsvarandi fjárhæð í ævilangan lífeyri eftir það.

Hafi hann hins vegar áunnið sér rétt til framreiknings, á hann rétt á örorkulífeyri sem svarar til þess lífeyris sem hann hefði áunnið sér ef hann hefði haldið áfram að greiða til sjóðsins. Við útreikning er miðað við meðallaun sl. þriggja ára fyrir orkutap.

Miðað við framangreindar forsendur fengi sjóðfélaginn framreiknaðan örorkulífeyri til lífeyrisaldurs sem nemur 140.867*.  Frá 67 ára aldri tekur við ævilangur lífeyrir sem nemur sömu fjárhæð.

Dæmið sýnir að framreiknaður örorkulífeyrir er verðmæt trygging og mikilvæg þeim sem hennar njóta.

Mikilvægt er að hafa í huga að örorkulífeyri er ekki ætlað að tryggja þér hærri tekjur en þú hafðir fyrir örorkuna. Því eru aðrar greiðslur eins og launagreiðslur og greiðslur frá almannatryggingum dregnar frá örorkulífeyri.

Meginskilyrði fyrir rétti til framreiknings örorkulífeyris eru þau að þú hafir greitt til sjóðsins tiltekin lágmarksiðgjöld í þrjú ár af sl. fjórum árum og þar af í sex mánuði af sl. tólf mánuðum. Nánari reglur um örorkulífeyri og skilyrði fyrir framreikningi hans er að finna í samþykktum sjóðsins.

* 140.867 kr. er sú fjárhæð sem sjóðfélagi hefði áunnið sér í lífeyri ef hann hefði greitt áfram 12% iðgjöld til sjóðsins af viðmiðunarlaunum sem eru þau laun sem hann hafði s.l. þrjú ár. Miðað er við aldurstengda réttindaávinnslu til 65 ára aldurs, sbr. samþykktir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.


Breytingar á reglum um örorkulífeyri

Reglur um örorkulífeyri geta breyst með breytingum á samþykktum sjóðsins. Í samþykktum  er mælt fyrir um að framreikningur skuli vera samkvæmt þeim reglum sem giltu þegar réttur til örorkulífeyris varð virkur.

Fyrirvari

Framangreindar upplýsingar eru settar fram í upplýsingaskyni.  Beri textanum ekki saman við texta samþykkta sjóðsins gilda samþykktir hans. 

Nánari upplýsingar má fá hjá lífeyrisdeild sjóðsins.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica