Örorkulífeyrir
Þú átt rétt á örorkulífeyri ef starfsgeta þín skerðist vegna sjúkdóma eða slyss þannig að skerðingin sé metin til a.m.k. 50% varanlegrar örorku af trúnaðarlækni sjóðsins.
Þeir sem greitt hafa í sjóðinn í tiltekinn tíma fyrir atburð sem veldur örorku ávinna sér rétt til svokallaðs framreiknings örorkulífeyris. Með framreikningi er bætt við áunnin réttindi, þeim réttindum sem reikna má með að þú hefðir öðlast til 65 ára aldurs miðað við meðaltal réttinda síðustu þrjú ár áður en örorka átti sér stað. Réttindi reiknast að fullu vegna þeirra 30 ára sem hagstæðust eru fyrir sjóðfélagann, þ.e. vegna þeirra ára sem iðgjaldagreiðslur eru hæstar, en að hálfu fyrir önnur ár.
Örorkulífeyrir verður aldrei hærri en sem nemur þeim tekjumissi sem sjóðfélagi hefur sannanlega orðið fyrir vegna örorkunnar.
Fyrstu þrjú árin miðast örorkumat við getu sjóðfélagans til að gegna því starfi sem hann hefur gegnt og veitti honum aðild að sjóðnum. Eftir þann tíma miðast örorkumat við getu hans til almennra starfa.
Reglur um örorkulífeyri er að finna í samþykktum sjóðsins.
Nánari upplýsingar er að finna í almennum upplýsingum um örorkulífeyri.

