Makalífeyrir
Almennar upplýsingar
Þegar þú greiðir í lífeyrissjóð ertu ekki eingöngu að afla þér réttinda á efri árum þegar þú hættir að vinna, heldur líka að tryggja að einhverju leyti afkomu fjölskyldu þinnar ef þú fellur frá. Ef þú fellur frá á maki þinn rétt til makalífeyris frá sjóðnum.
Hversu lengi er makalífeyrir greiddur?
Almennur makalífeyrir er greiddur í þrjú ár en á því eru ýmsar undantekningar og getur þá réttur til makalífeyris verið ríkari.
- Maki fædd(ur) fyrir 1925: Greiddur er ævilangur lífeyrir.
- Maki fædd(ur) frá 1925-1945: Maki þinn fær ævilangan lífeyri en sú upphæð fer stiglækkandi eftir fæðingarári.
- Ef þið eigið börn undir 23 ára aldri: Maki þinn fær makalífeyri þangað til yngsta barnið hefur náð 23 ára aldri.
- Maki þinn er öryrki og er yngri en 65 ára: Makalífeyrir er greiddur á meðan makinn er öryrki en að hámarki til 67 ára aldurs.
- Verðbættur makalífeyrir: Hann byggist á því að iðgjöld sjóðfélagans eru færð til verðlags í dag. Þannig fær makinn greiddan lífeyri á grundvelli iðgjalda sjóðfélagans með verðbótum. Mánaðarfjöldi verðbætts makalífeyris er fundinn með því að deila mánaðarfjárhæð makalífeyris upp í heildarfjárhæð verðbætts makalífeyris.
Hvernig er makalífeyrir reiknaður?
Makalífeyrir er 60% af réttindum sjóðfélagans við 67 ára aldur. Ef sjóðfélagi uppfyllir eftirfarandi skilyrði er réttur á framreikningi réttinda til 65 ára aldurs.
- Að hafa greitt í sjóðinn í a.m.k. 3 af síðustu 4 árum fyrir fráfall.
- Að hafa greitt í sjóðinn í a.m.k. 6 mánuði síðasta árið fyrir fráfall.
- Að hafa greitt iðgjald í sjóðinn að lágmarki 80.000* krónur hvert þessara þriggja ára.
Makalífeyrir er því 60% af framreikningsrétti.
* 80.000 kr. er grunnupphæð og skal verðbætt í byrjun hvers árs skv. vísitölu neysluverðs, miðað við grunnvísitölu 230, sbr. gr. 16.8 í samþykktum sjóðsins.
Hver er maki?
Maki telst sá sem við andlát sjóðfélaga er:
- í hjúskap með þeim látna.
- í staðfestri samvist með þeim látna.
- í óvígðri sambúð með þeim látna.
Fjárfélagi maka og þess látna má ekki hafa verið slitið fyrir andlátið þ.e. hjón eða sambúðarfólk þarf að hafa verið með sameiginleg fjármál við andlátið.
Getur makalífeyrir fallið niður?
Ef makinn giftist aftur eða stofnar til sambúðar innan þess tíma sem hann/hún á rétt á makalífeyri fellur sá réttur niður.
