Lækkun lífeyrisgreiðslna
Júlí 2010
Hér er að finna spurningar og svör sem snúa að lækkun lífeyrisgreiðslna hjá LV í júlí 2010.
Hver er ástæða lækkunar lífeyrisgreiðslna?
Tryggingafræðileg athugun á sjóðnum, sem miðuð var við árslok 2009, leiddi í ljós að heildareignir sjóðsins, samanborið við heildarskuldbindingar hans, eru neikvæðar um 10,8%. Lög um starfsemi lífeyrissjóða mæla fyrir um að eignir þeirra og skuldbindingar til framtíðar þurfi að standast á, þó heimilt sé að víkja frá því tímabundið. Því er ljóst að lagfæra þarf tryggingafræðilega stöðu sjóðsins með því að endurskoða lífeyrisréttindi og lífeyrisgreiðslur.
Lækka allir um 10%?
Sjóðurinn lækkar lífeyri hjá öllum um 10%. Heildartekjulækkun verður reyndar ekki 10% hjá öllum þar sem margir fá hærri greiðslur frá Tryggingastofnun á móti þeirri lækkun sem á sér stað hjá sjóðnum.
Hefur lækkunin einhver áhrif á greiðslur sem ég fæ frá TR?
Lækkunin getur haft áhrif til hækkunar á greiðslur frá Tryggingastofnun hjá þeim sem fá slíkt. Í þeim tilfellum þarf að skila inn nýrri tekjuáætlun til Tryggingastofnunar.
Áhrif breytinga er auðvelt að sjá með því að setja forsendur inn í reiknivél á tr.is.
Þarf ég að gera eitthvað til að fá greiðslur uppfærðar hjá Tryggingastofnun?
Ef þú átt rétt á greiðslum frá Tryggingastofnun hefurðu áður sent inn tekjuáætlun. Þessa tekjuáætlun þarf að uppfæra miðað við þá tekjulækkun sem þú verður fyrir. Best er að senda inn nýja tekjuáætlun til Tryggingastofnunar sem fyrst. Hægt er að gera þetta í gegn um vefsvæðið tryggur.is.
Ef þú aðhefst ekkert núna, en átt rétt á hækkun hjá Tryggingastofnun, færðu sjálfkrafa leiðréttingu um mitt ár 2011.
Hve mikið á ég að lækka tekjuáætlun mína hjá TR?
Hægt er að taka mismuninn á greiðslum frá sjóðnum í júní og júlí og margfalda þann mismun með 6 og gefur það tekjulækkunina það sem eftir er ársins 2010.
