Barnalífeyrir

Barnalífeyrir

  • iStock_000011968782XSmall

Barnalífeyrir er greiddur með börnum og kjörbörnum þínum ef þú fellur frá eða verður öryrki og færð greiddan örorkulífeyrir frá sjóðnum. Einnig fá fósturbörn og stjúpbörn barnalífeyri ef þú hefur séð um framfærslu þeirra að mestu eða öllu leyti.

Hver eru skilyrðin fyrir greiðslu barnalífeyris?

Skilyrði fyrir greiðslu barnalífeyris er að látinn maki/foreldri hafi greitt í sjóðinn í 2 ár á síðustu 3 árum eða  í a.m.k. 6 mánuði síðasta árið fyrir fráfall.

Ef þú ert öryrki og færð greiddan örorkulífeyrir frá sjóðunum áttu rétt á barnalífeyri ef þú hefur greitt í sjóðinn í 2 ár á síðustu 3 árum eða þú átt rétt á framreikningi.  Réttur til barnalífeyris fylgir ávallt sömu hlutföllum og örorkulífeyrir

Hversu hár er barnalífeyrir?

Barnalífeyrir er um 17 þúsund kr. á mánuði fyrir hvert barn og er greiddur til 20 ára aldurs þess. Barnalífeyrir er verðtryggður miðað við vísitölu neysluverðs.

Barnalífeyrir getur skerst ef hann er greiddur samhliða skertum örorkulífeyri.  Einnig getur skerðing komið til ef árleg iðgjöld hafa ekki numið 80.000 kr.* á viðmiðunartímabilinu fyrir fráfall foreldris.

*  80.000 kr. er grunnupphæð og skal verðbætt í byrjun hvers árs skv. vísitölu neysluverðs, miðað við grunnvísitölu 230, sbr. gr. 16.8 í samþykktum sjóðsins.

Hver fær greiddan barnalífeyri?

Barnalífeyrir greiðist oftast til framfæranda barns en getur líka verið greiddur beint til barnsins þegar um fráfall framfæranda er að ræða.






Tungumál