Útgreiðsla séreignarsparnaðar

Endurgreiðsla séreignarsparnaðar

Hvenær get ég hafið endurgreiðslu?

Aldur

Þegar þú nærð 60 ára aldri geturðu fengið endurgreitt úr séreignarsjóðnum þínum.

Veikindi eða slys

Verðir þú að hætta störfum vegna varanlegrar örorku af völdum slyss eða veikinda áttu rétt á að fá inneign þína í séreignardeild greidda út á minnst 7 árum.

Andlát

Ef þú átt inneign í séreignardeild og fellur frá, greiðist inneignin þín til erfingja og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga um lögerfðir. Vegna skattfrestunarákvæða iðgjaldagreiðslna þá er reiknaður tekjuskattur við útborgun séreignarsparnaðar en ekki erfðafjárskattur.

Gögn sem fylgja þurfa umsókn vegna andláts eru;

  1. Vottorð frá sýslumanni sem heitir Yfirlit um framvindu skipta
    Þar kemur fram hverjir eru lögerfingjar.
  2. Upplýsingar um bankareikningsnúmer lögerfingja

Börn eða maki geta afsalað sínum hluta og er þá útbúin sérstök yfirlýsing þess efnis á skrifstofu sjóðsins sem aðilar þurfa að undirrita.

Hvernig tek ég séreignina mína út?

Hægt er að sækja um útgreiðslu lífeyris með rafrænni umsókn.  Einnig er hægt að fylla út umsóknareyðublöð og faxa eða senda á sjóðinn.

Greitt er úr séreignardeild síðasta virka dag hvers mánaðar. Umsókn þarf að berast sjóðnum fyrir 20. dag útgreiðslumánaðar.

Á valstikunni hér til hliðar er að finna reiknivél sem þú getur notað til að finna út endurgreiðslur úr séreignarsjóði með þínum forsendum.

Greiði ég skatt af greiðslum úr séreignarsjóðnum?

Greiðslur úr lífeyrissjóðum eru skattlagðar eins og aðrar tekjur en lífeyrisþegar geta nýtt persónuafslátt sinn til þess að lækka skattana.  Greiðslur úr séreignarsjóði lúta sömu lögum.

Sjá nánar um tekjuskatt

Dæmi um greiðslur úr séreignardeildinni

Miðað er við að greitt sé af 300.000 kr. mánaðarlaunum og 4% raunávöxtun.

Tími Framlag launþega 2%
og launagreiðanda 2%

Mánaðarlegur
lífeyrir í 7ár
Mánaðarlegur
lífeyrir í 10 ár
10 ár 21.158 15.657
20 ár 55.324 40.939
30 ár 105.896 78.363
40 ár  180.756  133.760


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica