Skipting lífeyrisréttinda
Lífeyrisréttindi eru persónubundin og því óheimilt að framselja þau. Hins vegar er mögulegt skv. lögum að skipta ellilífeyrisréttindum á grundvelli samkomulags sjóðfélaga og maka hans.
Um tvo möguleika er að ræða við skiptingu ellilífeyrisréttinda:
Skipting áunninna réttinda
Skipting á fortíðarréttindum, þ.e. þegar áunnum réttindum, þó ekki síðar en fyrir 65 ára aldur og ef sjúkdómar eða heilsufar draga ekki úr lífslíkum. Eftir skiptinguna, sem er óafturkallanleg, verða ellilífeyrisréttindi beggja aðila sjálfstæð og fær hvor aðili greiddan ellilífeyri til æviloka.
Samkomulag um skiptingu áunninna ellilífeyrisréttinda hefur eftirfarandi í för með sér:
-
Við skilnað er tryggt að áunnin ellilífeyrisréttindi komi til skipta.
- Við dauðsfall sjóðfélaga fær eftirlifandi maki helming ellilífeyrisréttinda sjóðfélagans, auk þess sem maki fær greiddan makalífeyri út á áunnin og framreiknuð réttindi sjóðfélagans eins og ekki hefði komið til skiptingarinnar.
-
Áhættulífeyrisþátturinn (örorkulífeyrir, makalífeyrir, barnalífeyrir) er ennþá til staðar hjá sjóðfélaga eftir skiptinguna, en skiptiréttindin ein og sér mynda ekki rétt til örorkulífeyris eða barnalífeyris. Verði sjóðfélagi öryrki eftir að ellilífeyrisréttindum hefur verið skipt, fær hann því samt sem áður örorkulífeyri eins og ekki hefði komið til skiptingarinnar.
Heimilt er að skipta áunnum ellilífeyrisréttindum milli hjóna eða sambúðarfólks áður en taka ellilífeyris hefst, en þó eigi síðar en fyrir 65 ára aldur, og ef sjúkdómar eða heilsufar draga ekki úr lífslíkum.
Því þurfa bæði hjónin eða sambúðaraðilar að óska eftir yfirlýsingu heimilislæknis um heilsufar, þ.e. að læknirinn telji að sjóðfélaginn sé ekki haldinn neinum þeim sjúkdómum eða kvillum sem líklegir séu til að draga úr lífslíkum hans. Ef viðkomandi læknir vill ekki gefa út slíka yfirlýsingu, þá skal hann framkvæma læknisskoðun. Sjóðfélagi sem ekki hefur heimilislækni skal snúa sér til þess læknis sem stundað hefur hann undanfarið.
Eyðublöð varðandi yfirlýsingu um heilsufar og heilbrigðisvottorð fást á skrifstofu sjóðsins.
Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga áður en samkomulag er gert um skiptingu ellilífeyrisréttinda:
Ávinningur ef sá sem er með lakari lífeyrisréttindi lifir maka sinn
Samkomulag um skiptingu ellilífeyrisréttinda milli hjóna tryggir stöðu þess sem er með lakari ellilífeyrisrétt ef viðkomandi missir maka sinn. Dæmi er hjón sem ákveða að skipta áunnum réttindum. Konan er með lítil ellilífeyrisréttindi í samanburði við karlinn. Ef karlinn fellur fyrr frá, fær konan mun betri ellilífeyrisréttindi því að hún fær helming af réttindum hans og auk þess full makalífeyrisréttindi.
Tap ef sá sem er með lakari lífeyrisréttindi deyr á undan
Ef hins vegar sá sem er með lakari ellilífeyrisréttindi deyr á undan þeim sem er með betri lífeyrisréttindi, tapar sá sem eftir lifir áunnum ellilífeyrisréttindum sem hann hafði áður afsalað sér til makans. Þar að auki er líklegt að eftirlifandi maki fái lágan makalífeyri eftir maka sinn.
Skipting framtíðarréttinda
Skipting á framtíðarréttindum, þ.e. þeirra ellilífeyrisréttinda sem ávinnast eftir að samkomulagið er gert og þar til hjúskap, sambúð eða samvist er slitið.
Samkomulagið er mögulegt að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Samkomulagið skal einungis taka til skiptingar ellilífeyrisréttinda.
-
Rétturinn til þess að skipta ellilífeyrisréttindum tekur til þeirra sem eru eða hafa verið í hjúskap, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist.
-
Sjóðfélaginn og maki hans þurfa að gera með sér skriflegt samkomulag um skiptinguna og tilkynna hlutaðeigandi lífeyrissjóðum um það.
-
Samkomulagið skal fela í sér gagnkvæma skiptingu réttindanna og sú skipting skal vera jöfn, þ.e. hvort hjóna eða sambúðarfólks skal veita hinu sama hlutfall réttinda sinna. Heimilt er að framselja til makans allt að helmingi þeirra réttinda sem um er að tefla.
-
Skiptingin skal einungis taka til áunninna réttinda meðan hjúskapur, óvígð sambúð eða staðfest samvist hefur staðið eða stendur.
- Taki samningur til skiptingar ellilífeyrisréttinda skv. 3 (skipting lífeyrisgreiðslna) eða skv. 2 (skipting framtíðarréttinda), getur hvor samningsaðila sagt samningnum skriflega upp með 3ja mánaða fyrirvara, enda standi aðrir samningar eða fyrirmæli ekki í vegi fyrir því. Ekki er hægt að segja upp samningi skv. 1 (skipting áunninna réttinda).
Hægt er að fá póstsendan samning um skiptingu ellilífeyrisréttinda.
