Ævilangur lífeyrir
Almennar upplýsingar
Hér er að finna almennar upplýsingar um ævilangan lífeyri. Gengið er út frá spurningum sem algengt er að vakni þegar taka lífeyris nálgast eða eftir að lífeyristaka hefst. Ef spurningum þínum er ekki svarað hér þá er þér velkomið að hafa samband við skrifstofu sjóðsins með tölvupósti eða í síma 580 4000.
Hvaða áhrif hefur frestun eða flýting lífeyristöku á lífeyrinn minn?
Mánaðarleg greiðsla til þeirra sem hefja lífeyristöku fyrir 67 ára aldur lækkar um allt að 15,0%, eftir því hvenær hún hefst, þar sem lífeyristakan dreifist yfir lengri tíma.
Ef þú kýst aftur á móti að fresta lífeyristöku fram yfir 67 ára aldur hækka mánaðarlegar greiðslur að sama skapi um allt að 27,8%.
Í meðfylgjandi töflu sjást áhrif á mánaðarlegar greiðslur eftir því hvort töku ellilífeyris er flýtt eða frestað. Taflan er unnin af tryggingastærðfræðingi út frá lífaldri Íslendinga hverju sinni og getur því tekið breytingum.
| Aldur við upphaf eftirlauna | Breyting mánaðargreiðslu | |
|---|---|---|
| 65 ára | 15,0% lækkun | |
| 66 ára | 7,8% lækkun | |
| 67 ára | - |
|
| 68 ára | 8,2% hækkun | |
| 69 ára | 17,4% hækkun | |
| 70 ára | 27,8% hækkun | |
Oft vaknar sú spurning hjá fólki sem er að komast á lífeyrisaldur hvenær hagstæðast sé að hefja lífeyristöku. Það ræðst af lífaldri hvers og eins, þ.e. hvort viðkomandi lifi lengur eða skemur en sem nemur meðallífaldri.
Þetta er háð fleiri forsendum í ákvarðanatökunni og það er því þitt að meta hvað best er fyrir þig. „Vil ég hefja lífeyristöku strax eða geyma hana?“ er spurning sem hver og einn verður að svara fyrir sig.
Hvar fæ ég upplýsingar um lífeyrisrétt minn?
Upplýsingar um lífeyrisrétt þinn hjá sjóðnum eru aðgengilegar á sjóðfélagavef sjóðsins efst í hægra horni hér á vefnum. Þar getur þú séð upplýsingar um áunninn lífeyri, þ.e. eins og staðan væri ef þú hættir að greiða í sjóðinn í dag. Einnig getur þú reiknað út þann lífeyri sem þú getur vænst við 67 ára aldur miðað við að þú haldir áfram að greiða til lífeyrissjóðsins af tilteknum launum fram til þess tíma.
Á sjóðfélagavefnum er að finna reiknivél þar sem þú getur reiknað út réttindi þín miðað við að hefja lífeyristöku á mismunandi aldri.
Einnig sendir sjóðurinn út yfirlit tvisvar á ári með upplýsingum um áunninn og væntanlegan lífeyri til sjóðfélaga sem greiða iðgjöld til sjóðsins.
Get ég fengið upplýsingar um lífeyrissjóði sem ég hef áður greitt til?
Þegar kemur að töku lífeyris er best fyrir þig að snúa þér til þess lífeyrissjóðs sem þú greiddir síðast til.
Flestir greiða til fleiri en eins lífeyrissjóðs yfir starfsævina. Þegar kemur að töku lífeyris er best fyrir þig að snúa þér til þess lífeyrissjóðs sem þú greiddir síðast til. Sá sjóður sér um að áframsenda umsóknina til þeirra lífeyrissjóða sem þú hefur greitt til.
Yfirlit yfir þá sjóði sem þú hefur greitt til, ásamt upplýsingum um hvenær þú greiddir síðast til hvers sjóðs er að finna á sjóðfélagavef þínum. Greiðslustofa lífeyrissjóðanna veitir einnig upplýsingar um þá sjóði sem landsmenn hafa greitt til.
Erfist réttur til ævilangs lífeyris?
Réttur til ævilangs lífeyris erfist ekki.
Hins vegar á maki rétt á makalífeyrisgreiðslum frá sjóðnum, á grundvelli þeirra iðgjalda sem sjóðfélagi hefur greitt til sjóðsins fyrir fráfall sitt.
Á sama grundvelli skapast réttur til barna- og örorkulífeyris.
Frekari upplýsingar má finna á upplýsingasíðum um viðkomandi réttindi.
Borga ég skatt af lífeyrisgreiðslum?
Lífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóðum eru skattskyldar með sama hætti og almennar launatekjur. Þú þarft því að gera ráð fyrir að greiða skatt af þeim tekjum sem þú færð frá LV eftir því skattþrepi sem þú ert í.
LV sér um að skila staðgreiðslu af lífeyrisgreiðslum til skattayfirvalda. Mundu því að skila inn skattkorti til LV ef þú vilt nýta það fyrir lífeyrisgreiðslur frá sjóðnum.
Held ég rétti mínum hjá VR eftir að lífeyristaka hefst?
Þeir sem hefja töku lífeyris 67 ára eða eldri og hafa greitt í VR til þess tíma halda rétti sínum hjá félaginu.
Hefjir þú töku lífeyris fyrir 67 ára aldur er þér ráðlagt að greiða til VR af lífeyri þínum til 67 ára aldurs, viljir þú halda rétti þínum hjá félaginu.
Gott að hafa í huga
Hér eru hagnýtar upplýsingar sem gott er að hafa í huga varðandi lífeyrismál.
Hvað ...
... ef greiðslurnar berast ekki inn á reikninginn minn?
LV greiðir út lífeyri síðasta virka dag hvers mánaðar. Ef greiðslan kemur ekki fram á reikningnum er rétt að hafa fyrst samband við bankann þinn.
... ef ég skipti um banka eða bankareikning?
Þú verður að láta okkur vita um allar slíkar breytingar. Þú getur annaðhvort hringt í okkur eða sent okkur tölvupóst.
... ef ég flyt?
Þar sem gagnagrunnur okkar er tengdur við þjóðskrá er ekki þörf á að tilkynna um breytt lögheimili.
Ef þú aftur á móti vilt fá upplýsingar sendar annað en á lögheimili, þarftu að tilkynna það til LV sérstaklega.
... ef ég bý erlendis?
Ef þú býrð erlendis og ert með lögheimili þar fáum við engar upplýsingar um heimilisföng nema þú látir okkur vita af breytingum.
Ef þú býrð erlendis þarftu að gæta þess að bankareikningur þinn á Íslandi sé opinn þar sem eingöngu er greiddur lífeyrir inn á innlenda bankareikninga.
