Skattkort
Lífeyrisgreiðslur eru skattlagðar eins og aðrar launatekjur.
Frá 1.1.2012 verður tekjuskattur einstaklinga eftirfarandi:
| - | Af fyrstu 230.000 kr. | 37,34% |
| - | Af næstu 474.367 kr. | 40,24% |
| - | Af fjárhæð umfram 704.367 kr. | 46,24% |
Það er á ábyrgð hvers lífeyrisþega að tilkynna í hvaða skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera. Nauðsynlegt er að upplýsa sjóðinn um tekjur frá öðrum aðilum en lífeyrissjóðnum, svo greiðslur frá honum skattleggist í réttu skattþrepi. Ekki þarf að hafa samband við sjóðinn ef greiðslur frá öðrum að viðbættum greiðslum frá lífeyrissjóðnum eru lægri en 230.000 kr. á mánuði.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur árið 2012 er 46.532 kr. á mánuði
Skattkort lækkar skattinn því það veitir rétt til persónuafsláttar á staðgreiðsluári. Eigi lífeyrisþegi ónýttan persónuafslátt er mikilvægt að afhenda sjóðnum skattkort.
Lífeyrisþegar geta nýtt allt að 100% af ónýttu skattkorti maka til skattalækkunar.
Við fráfall maka geta lífeyrisþegar nýtt skattkort makans í 9 mánuði frá og með andlátsmánuði.
Skattleysismörk miðað við lægsta skattþrep
Skattleysismörk lífeyrisþega eru 124.617 kr. á mánuði og eru fundin með því að deila persónuafslættinum 46.532 kr. með skattprósentunni 37,34%.
Dæmi um skattkort
Nánari upplýsingar um skatta árið 2012 má finna á heimasíðu RSK hér.
