Ævilangur lífeyrir
Almennur eftirlaunaaldur er 67 ár. Þú eignast ekki tiltekna inneign á reikningi, eins og gildir um séreignarsparnað, heldur ávinnur þú þér tryggingu fyrir ævilöngum lífeyrisgreiðslum frá því að taka lífeyris hefst. Þannig munt þú fá greiðslur sem endurspegla framlag þitt í gegnum árin, auk þeirrar ávöxtunar sem sjóðurinn hefur áunnið sér.
Með greiðslu til LV ávinnur þú þér rétt til ævilangs lífeyris frá því að taka lífeyris hefst.
Auk réttar til ævilangs lífeyris ávinnur þú þér rétt til örorkulífeyris vegna skertrar starfsgetu. Sömuleiðis ávinnur þú maka þínum rétt til makalífeyris við fráfall og börnum þínum rétt til barnalífeyris ef starfsgeta þín skerðist verulega eða þú fellur frá.
Upphaf lífeyristöku
Almennur eftirlaunaaldur miðast við 67 ára aldur. Þú hefur jafnframt val um að flýta töku lífeyris til 65 ára aldurs eða fresta til allt að 70 ára aldurs.

