Lífeyrisþegar

Lífeyrisþegar

  • brosandi_eldri_madur

Þegar sjóðfélagar greiða í lífeyrissjóð öðlast þeir réttindi til ævilangs lífeyris eftir að atvinnuþátttöku lýkur. 

Jafnframt myndast réttur til örorkulífeyris, makalífeyris og barnalífeyris við örorku eða fráfall.


Ævilangur lífeyrir

Með greiðslu til LV ávinnur þú þér rétt til ævilangs lífeyris frá því að taka lífeyris hefst.

Almennur eftirlaunaaldur er 67 ár.


Örorkulífeyrir

Þú átt rétt á örorkulífeyri ef starfsgeta þín skerðist vegna sjúkdóma eða slyss þannig að skerðingin sé metin til a.m.k. 50% varanlegrar örorku af trúnaðarlækni sjóðsins.


Makalífeyrir

Maki sjóðfélaga sem greitt hefur iðgjöld til lífeyrissjóðsins í tiltekinn tíma á rétt á makalífeyri.


Barnalífeyrir

Barnalífeyrir er greiddur með börnum og kjörbörnum þínum ef þú hlýtur örorku eða fellur frá. Einnig fá fósturbörn og stjúpbörn barnalífeyri ef þú hefur séð um framfærslu þeirra að mestu eða öllu leyti.






Tungumál