Innheimta lífeyrisiðgjalda
Innheimta lífeyrisiðgjalda
Sjóðurinn annast innheimtu vangoldinna iðgjalda fyrir sjóðfélaga hjá launagreiðendum þeirra. Sjóðurinn hefur ákveðnar leiðir til að fylgjast með greiðslum og stofna til sérstakrar innheimtu þegar þörf er á.
Mikilvægt er að fylgjast ávallt vel með því að iðgjöld berist sjóðnum frá launagreiðanda. Þetta getur þú gert á tvennan hátt.
-
Skoða vel sjóðfélagayfirlitin sem send eru heim til þín tvisvar á ári.
Mikilvægt er að fylgjast með að iðgjöldin til lífeyrissjóðsins sem fram koma á yfirlitinu séu í samræmi við launaseðla, því verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.
Ef þú hefur ekki fengið yfirlit, þótt iðgjald í lífeyrissjóðinn hafi verið dregið af launum þínum eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skaltu hafa samband við viðkomandi fyrirtæki og/eða innheimtudeild sjóðsins sem fyrst. -
Á sjóðfélagavef sjóðsins.
Hægt er að skrá sig inn á sjóðfélagavefinn efst í hægra horni vefsins. Ef þú ert ekki með aðgang, geturðu stofnað hann á sama stað og fengið notandanafn og lykilorð sent um hæl í netbankann þinn.
Sjóðurinn er með ákveðið eftirlit með greiðslum frá launagreiðendum:
- Ef greiðslur hætta að berast fyrir starfsmenn án þess að tilkynnt sé um starfslok, er slíkt kannað.
- Ef vinnuveitandi greiðir engin lífeyrissjóðsiðgjöld fyrir starfsmenn sína fer innheimtuferli í gang.
Þegar þú hefur störf hjá nýjum launagreiðanda er mikilvægt að fylgjast með því að fyrstu iðgjaldsgreiðslur skili sér til sjóðsins.
Ef iðgjöld skila sér ekki er rétt að hafa samband við sjóðinn sem fyrst vegna innheimtu þeirra.

