Launþegi
Almennar upplýsingar
  • iStock_000003511837XSmall

Launþegi

Upplýsingar um réttindi

Hér er m.a. að finna upplýsingar um aðild, greiðslur í sjóðinn og  iðgjaldahlutfall.  Upplýsingarnar byggja á lögum, reglugerðum og samþykktum sjóðsins. 

Hverjir eiga aðild að Lífeyrissjóði verzlunarmanna?

Launþegar sem eru félagar í VR eiga aðild að sjóðnum. Aðild eiga jafnframt félagar í öðrum samtökum verslunarmanna og þeir sem byggja starfskjör sín á kjarasamningi VR eða starfa á starfssviði sjóðsins. Öllum launþegum og þeim sem stunda atvinnurekstur er skylt samkvæmt lögum að greiða iðgjald til lífeyrissjóðs frá 16 ára til 70 ára aldurs.

Á grundvelli laga eiga ýmsir launþegar og sjálfstæðir atvinnurekendur valkvæða aðild að sjóðnum.

Nánar um aðild að sjóðnum má sjá í samþykktum hans.

Hversu mikið á ég að greiða í lífeyrissjóð?

Iðgjald er 12% af heildarlaunum.

Sjóðfélagi greiðir 4% iðgjald af launum og launagreiðandi 8% mótframlag.

Sjálfstæður atvinnurekandi greiðir bæði hluta launþega og launagreiðanda.

Iðgjald reiknast ekki af ökutækjastyrk, bifreiðahlunnindum, dagpeningum og öðrum útlögðum kostnaði.

Hversu hátt er mótframlag launagreiðanda?

Launagreiðandi greiðir 8% launa í mótframlag í lífeyrissjóð. 

Að auki skal launagreiðandi greiða 2% viðbótarmótframlag ef þú greiðir a.m.k. 2% í séreignarsjóð.

Hvaða réttindi ávinn ég mér með greiðslum til sjóðsins?

Með greiðslum til sjóðsins ávinna sjóðfélagar sér rétt til ævilangs lífeyris, örorku-, maka- og barnalífeyris. 

Upplýsingar um hvern lífeyrisflokk og skilyrði fyrir útgreiðslu lífeyris, er að finna í kaflanum um lífeyrisþega hér á síðunni.

Hvernig ávinn ég mér rétt til lífeyris?

Réttindaávinnsla sjóðfélaga byggir nú á meginreglunni um aldurstengda réttindaávinnslu. Það þýðir að sá réttur sem þú ávinnur þér fyrir greitt iðgjald tekur mið af aldri þegar iðgjaldið er greitt til sjóðsins. Réttindaávinnslan er þeim mun meiri eftir því sem þú ert yngri. Þetta byggir á því að iðgjöld eru verðmætari eftir því sem þau ávaxtast lengur hjá sjóðnum. Réttindaávinnsla ákvarðast af töflu sem er í viðauka við samþykktir sjóðsins.

aldurstengd_avinnslaDæmi um aldurstengda ávinnslu lífeyris:


Forsendur: Miðað er við einstakling sem greiðir 12% iðgjald af launum frá 23 til 67 ára aldurs af 200.000 kr. heildarlaunum. Miðað er við 3,5% raunávöxtun eigna sjóðsins yfir tímabilið.

Línan sýnir áunninn mánaðarlegan lífeyri m.v. aldurstengda réttinda­ávinnslu.

Meðfylgjandi mynd sýnir ávinnslu lífeyrisréttinda miðað við aldurstengda réttindaávinnslu.  Á yngri árum er réttindaávinnslan mest.  Þegar á ævina líður minnkar hún smám saman, þar sem vægi ávöxtunar minnkar.

Auk réttar til ævilangs ellilífeyris  nýtur þú réttar til örorku-, maka- og barnalífeyris meðan á ávinnslu ellilífeyrisréttinda stendur. Einnig ávinnur þú þér rétt til framreiknings örorku- og makalífeyris eftir að hafa greitt til lífeyrissjóðs í a.m.k. þrjú ár, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.  Sjá nánar í umfjöllun um örorku- og makalífeyri.

Hvernig virkar jöfn réttindaávinnsla?

Fram til ársins 2006 byggðist réttindakerfi lífeyrissjóðsins á jafnri ávinnslu, en það þýðir að sömu lífeyrisréttindi fást fyrir sama iðgjald óháð aldri.

Um blandaða réttindaávinnslu

Til að tryggja hagsmuni þeirra sjóðfélaga sem höfðu áunnið sér réttindi framan af starfsævinni í jafnri ávinnslu, var ákveðið að þeir sjóðfélagar sem voru 25 ára og eldri í árslok 2005 og áttu þá réttindi í sjóðnum, gætu haldið áfram að greiða iðgjöld í jafna réttindaávinnslu það sem eftir væri starfsævinnar upp að tilteknu hámarki sem tæki mið af verðbættu viðmiðunariðgjaldi. Iðgjald hvers árs umfram verðbætt viðmiðunariðgjald færist hins vegar í aldurstengda ávinnslu.

Greiði ég skatt af iðgjöldum?

Samkvæmt meginreglu skattalaga er 4% iðgjald, mótframlag launagreiðanda og allt að 4% viðbótariðgjald launþega í séreignarsjóð undanþegið tekjuskatti.  Tekjuskattur er þó greiddur við útborgun lífeyris.


Dæmi um hvernig lífeyrissparnaður lækkar skattinn

Heildarlaun á mánuði 100.000 150.000 300.000
Frádregið iðgjald 4% 4.000 6.000 12.000
Frádregið viðbótariðgjald 4% 4.000 6.000 12.000
Lækkun staðgreiðslu* 2.978 4.466 9.629
Lækkun staðgreiðslu á ári 35.731
53.597 115.546
*  Greiddur er 37.22% skattur af tekjuskattsstofni undir 200.000 kr. en 40,12% skattur umfram það.

Hvernig get ég fylgst með því að lífeyrisiðgjöldin mín skili sér til sjóðsins?

Mikilvægt er að þú fylgist vel með hvort iðgjöld sem dregin eru af launum þínum skili sér.  Sjóðurinn sendir yfirlit yfir móttekin iðgjöld tvisvar á ári, í mars og september. 

Þú getur líka farið inn á sjóðfélagavefinn (flipi efst í hægra horni þessarar síðu) og skoðað allar greiðslur sem sjóðnum hafa borist.  Ef þú ert ekki með aðgang að sjóðfélagavefnum, geturðu sótt um hann á sama stað.

Mikilvægt er að fylgjast með að iðgjöld sem fram koma á yfirlitinu séu í samræmi við launaseðla.  Komi til umtalsverðra vanskila á greiðslum iðgjalda, geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.

Ef þú hefur ekki fengið yfirlit, þótt iðgjald til sjóðsins hafi verið dregið af launum þínum eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skaltu hafa samband við viðkomandi fyrirtæki og/eða innheimtudeild sjóðsins sem fyrst.

Hvar fæ ég upplýsingar um lífeyrisrétt minn?

Upplýsingar um lífeyrisrétt þinn hjá sjóðnum eru aðgengilegar á sjóðfélagavef sjóðsins efst í hægra horni hér á vefnum.  Þar getur þú séð upplýsingar um áunninn lífeyri, þ.e. eins og staðan væri ef þú hættir að greiða í sjóðinn í dag.  Einnig getur þú reiknað út þann lífeyri sem þú getur vænst við 67 ára aldur miðað við að þú haldir áfram að greiða til lífeyrissjóðsins af tilteknum launum fram til þess tíma.

Á sjóðfélagavefnum er að finna reiknivél þar sem þú getur reiknað út réttindi þín miðað við að hefja lífeyristöku á mismunandi aldri.   

Einnig sendir sjóðurinn út yfirlit tvisvar á ári með upplýsingum um áunninn og væntanlegan lífeyri til sjóðfélaga sem greiða iðgjöld til sjóðsins.

Hvar fæ ég upplýsingar um lífeyrissjóði sem ég hef áður greitt til?

Flestir greiða til fleiri en eins lífeyrissjóðs yfir starfsævina. Þegar kemur að töku lífeyris er best að snúa sér til þess lífeyrissjóðs sem síðast var greitt til.

Yfirlit yfir þá sjóði sem þú hefur greitt til,  ásamt upplýsingum um hvenær þú greiddir síðast til hvers sjóðs er að finna á sjóðfélagavef. Greiðslustofa lífeyrissjóða veitir einnig upplýsingar um þá sjóði sem landsmenn hafa greitt til.

Hefur það einhver áhrif á réttindi mín ef ég skipti um lífeyrissjóð?

Áunnin lífeyrisréttindi varðveitast verðtryggð. Þegar að töku ellilífeyris kemur færð þú greitt úr sjóðnum samkvæmt því. Margir fá því greitt frá fleiri en einum lífeyrissjóði með svipuðum hætti og þeir fengju launagreiðslur frá fleiri en einum launagreiðanda. 

Réttindi til örorkulífeyris byggja á samþykktum viðkomandi lífeyrissjóða og samkomulagi um samskipti lífeyrissjóða sem flestir sjóðir eru aðilar að.

Erfist réttur minn til ævilangs lífeyris?

Réttur til ævilangs lífeyris erfist ekki. Hins vegar á maki rétt á makalífeyri frá sjóðnum, á grundvelli þeirra iðgjalda sem sjóðfélagi hefur greitt til sjóðsins fyrir fráfall.  Á sama grundvelli skapast réttur til barna- og örorkulífeyris. 

Nánari upplýsingar um maka- og barnalífeyri.

Getur maki fengið hluta réttinda minna til ævilangs lífeyris?

Já, hjónum og sambúðarfólki er heimilt að gera samning um skiptingu áunninna réttinda og framtíðarréttinda.  Eins er hægt að gera samkomulag um skiptingu lífeyrisgreiðslna eftir að taka lífeyris er hafin.

Hér getur þú lesið þér betur til um hvernig skipting réttinda milli hjóna fer fram.

Fá erlendir ríkisborgarar endurgreitt úr sjóðnum?

Endurgreiðsla til ríkisborgara landa innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) er ekki heimil.  Þessi lönd eru:

Austurríki, Belgía, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland,  Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Kýpur, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.

Í því tilfelli þegar erlendur ríkisborgari á rétt á endurgreiðslu iðgjalda, gilda eftirfarandi reglur:

Erlendur ríkisborgari fær 80% þeirrar upphæðar sem bæði hann og vinnuveitandi hans hafa innt af hendi til sjóðsins auk vaxta og verðbóta, sem reiknaðar eru út frá vísitölu neysluverðs.  Frá endurgreiðslunni eru dregin 20% sem endurgjald fyrir umsýslu og tryggingavernd sem sjóðfélagi hefur notið.

Með endurgreiðslu iðgjalda afsalar viðkomandi sér alls réttar sem hann áður hafði áunnið sér hjá sjóðnum.  Endurgreiðslan er skattlögð á sama hátt og ef um lífeyrisgreiðslur væri að ræða.  

Fylgigögn með umsókn um endurgreiðslu:

  1. Staðfesting á starfslokum frá síðasta vinnuveitanda
  2. Afrit af vegabréfi umsækjanda
  3. Afrit af farseðli umsækjanda til heimalands síns og/eða sambærilegri staðfestingu.
  4. Afrit af síðasta launaseðli
  5. Reikningsnúmer og bankaupplýsingar umsækjanda á Íslandi



 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica