Launþegi
Launþegi
  • fjolskylda_ferkontud

Launþegi

Lífeyrissjóður veitir sjóðfélögum sínum ekki eingöngu réttindi til lífeyris á eftirlaunaaldri.

Til viðbótar réttar til ævilangs lífeyris ávinnur þú þér rétt til örorkulífeyris vegna skertrar starfsgetu, maka til makalífeyris við fráfall og börnum þínum rétt til barnalífeyris ef starfsgeta þín skerðist verulega eða þú fellur frá.

Öllum launþegum á aldrinum 16 til 70 ára er skylt að greiða í lífeyrissjóð.


Innheimta lífeyrisiðgjalda

Sjóðurinn sér um innheimtu vangoldinna iðgjalda fyrir sjóðfélaga hjá atvinnuveitendum þeirra.  Mikilvægt er að fylgjast ávallt vel með því að lífeyrissjóðsgreiðslur berist sjóðnum frá vinnuveitanda. 

 

Reikna út lífeyri

Hér getur þú reiknað út lífeyrisréttindi út frá uppgefnum forsendum. 

 

Skipting réttinda milli hjóna

Hjónum og sambúðarfólki er heimilt að gera samning um skiptingu áunninna réttinda og framtíðarréttinda.  Eins er hægt að gera samkomulag um skiptingu lífeyrisgreiðslna eftir að taka lífeyris er hafin.

 

Umsóknir og eyðublöð

Hér geturðu fundið umsóknareyðublöð sem eru til staðar á vef sjóðsins.

 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica