Gagnlegar upplýsingar
Lífeyrisiðgjöld og félagsgjöld
Almenn lífeyrisiðgjöld
Lágmarksiðgjald til öflunar lífeyrisréttinda er 12% af heildarlaunum. Launþegum á aldrinum 16 til 70 ára er skylt að greiða í lífeyrissjóð. Launþegar greiða 4% af launum og launagreiðendur 8%.
Sjálfstæðir atvinnurekendur greiða bæði hlut launþega og launagreiðanda.
Iðgjöld í séreignarsparnað
Í flestum kjarasamningum er ákvæði um 2% mótframlag launagreiðenda í séreignarsjóð launþega sem þýðir að þeir sem spara 2 - 4% af launum fá þá 2% í mótframlag frá launagreiðanda.
Félagsgjöld
Félagsgjöld reiknast af sama grunni og lífeyrisiðgjaldið samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Sjóðurinn innheimtir félagsgjöld fyrir eftirfarandi félög:
-
VR
-
Félag tanntækna og aðstoðarfólks tannlækna (FTAT)
Hér má finna frekari upplýsingar um félagsgjöldin.
Launagreiðendum og sjálfstæðum atvinnurekendum er skylt að tilkynna sjóðnum ef þeim ber ekki lengur að standa skil á iðgjaldi þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra hafa látið af störfum. Þetta er best að gera með því að senda póst á netskil@live.is.
Endurhæfingarsjóður
Öllum launagreiðendum er skylt frá og með 1. september 2011 (septemberlaun) að inna af hendi iðgjald, 0,13% af heildarlaunum, sem rennur til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Þetta er samkvæmt lögum nr. 73/2011, 12. gr, sem Alþingi samþykkti á vordögum. Fram til þessa hefur einungis verið kveðið á um greiðsluskyldu í kjarasamningum en nú nær greiðsluskylda einnig til þeirra sem ekki eiga aðild að kjarasamningum.
Samkvæmt lögunum ber launagreiðanda að standa skil á iðgjaldinu til þess lífeyrissjóðs sem hann greiðir lífeyrisiðgjald til. Lífeyrissjóðnum ber þannig að hafa milligöngu um innheimtu gjaldsins og ráðstafar því svo til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs.
Nánari upplýsingar um VIRK Starfsendurhæfingarsjóð er að finna hér.
Greiðsluupplýsingar
Þrjár leiðir eru mögulegar við greiðslu iðgjalda:
- Greiða í netbanka inn á bankareikning 515-26-1007, kt. 430269-4459.
- Greiða með bankainnleggi.
- Póstsenda sjóðnum tvístrikaða ávísun.
| Almennar greiðsluupplýsingar | |
|---|---|
| Kennitala | 430269-4459 |
| Bankareikningur | 515-26-1007 |
| Lífeyrissjóðsnúmer | 860 |
| Lífeyrissjóðsnúmer séreignardeildar | 861 |
| Félagsnúmer VR | 511 |
| Félagsnúmer FTAT | 962 |
| Gjalddagi | 10. dagur næsta mánaðar |
| Eindagi | Síðasti virki dagur þess mánaðar |
| Myndsendir | 580 4099 |
| Sími | 580 4000 |
Gjalddagi og eindagi iðgjalda
Gjalddagi- 10. næsta mánaðar
Dæmi: Iðgjöld vegna launa í október eru með gjalddaga 10. nóvember.
Eindagi - síðasti virki dagur næsta mánaðar
Dæmi: Iðgjöld vegna launa í október eru með eindaga síðasta virka dag í nóvember.
Eigi greiðsla sér ekki stað innan þess mánaðar eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.
Innheimtuferli
Innheimtuferli hefst ef iðgjöld eru ógreidd á eindaga.
Ferlið er eftirfarandi:
-
Aðvörun send 15. dag fyrsta mánaðar eftir gjalddaga, þar sem gefinn er 15 daga frestur.
-
Innheimtubréf sent 10. dag annars mánaðar eftir gjalddaga, þar sem gefinn er 14. daga frestur.
-
Málið sent lögfræðingi til innheimtu í þriðja mánuði eftir gjalddaga.
Dæmi ef ágúst er í vanskilum:
- Gjalddagi er 10. september.
- Eindagi er 30. september.
- Aðvörun send 16. október með fresti til 30. október.
- Innheimtubréf sent 10. nóvember með fresti til 24. nóvember.
- Lögfræðingi sent málið til innheimtu í desember.
Eftirlit Ríkisskattstjóra
Ríkisskattstjóri safnar í kjölfar hvers árs upplýsingum um iðgjaldsskyld laun og skil iðgjalda til lífeyrissjóða. Þetta er gert með samanburði á upplýsingum af launamiðum, skattframtölum og iðgjaldaskilum til lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðum ber að innheimta vangoldin iðgjöld á grundvelli upplýsinga frá Ríkisskattstjóra að viðbættum dráttarvöxtum.
Frekari upplýsingar um þetta er að finna á vef Ríkisskattstjóra.

