Lántakandi
Veðflutningur

Veðflutningur

Við veðflutning mega uppreiknaðar eftirstöðvar áhvílandi lána að viðbættu láni sjóðsins ekki vera umfram 65% af metnu markaðsverði viðkomandi eignar sem löggiltur fasteignasali eða annar sérfróður aðili, tilnefndur af sjóðnum, framkvæmir. Lántakandi greiðir kostnað vegna verðmats.

Beiðni um veðflutning

Skila þarf eftirtöldum gögnum til sjóðsins þegar óskað er eftir veðflutningi

  1. Nýtt veðbókarvottorð stimplað af sýslumanni. (Athugið að veðbandayfirlit jafngildir ekki veðbókarvottorði)
  2. Nýjar eftirstöðvar áhvílandi lána eða síðustu greiddu greiðsluseðlar (kvittanir).
  3. Afrit af tryggingarbréfum sem hvíla á eigninni. (Ef við á)
  4. Afrit af þinglýstum kaupsamningi hafi eignin skipt um eigendur á síðustu 3 árum.
  5. Verðmat frá löggiltum fasteignasala. (Í samráði við starfsmenn sjóðsins)
  6. Vottorð um smíðatryggingu sé eign í smíðum.
  7. Greiðslumat óski lífeyrissjóðurinn eftir því.

Boðið er upp á tvær leiðir til veðflutnings

  1. Veðflutningur fer fram í einu skjali í umsjón sjóðsins gegn sendingargjaldi.
  2. Sjóðfélagi sér um þinglýsingu skjalanna og fer þá veðflutningur fram í tveimur hlutum. Fyrst skal þinglýsa yfirlýsingu um nýja veðsetningu og skila henni síðan aftur þinglýstri til sjóðsins í skiptum fyrir veðbandslausn vegna eldra veðs, sem einnig þarf að þinglýsa.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica