Jafngreiðslulán (annuitet) þýðir að greiðslur sem þú innir af hendi eru jafnháar að raungildi út lánstímann. Hins vegar er vægi afborgana og vaxta breytilegt. Höfuðstóll greiðist hægar niður en á láni með jöfnum afborgunum.
Jafnar afborganir þýða að höfuðstóllinn er alltaf greiddur jafn mikið niður við hverja greiðslu. Hægt er að velja á milli fastra eða breytilegra vaxta. Greiðslubyrði er þannig þyngst í upphafi en léttist eftir því sem líður á lánstímann.
