Lánareglur
og önnur hagnýt atriði
Á ég rétt á láni?
Þú átt rétt á láni ef þú hefur greitt iðgjald til sjóðsins í 4 af síðustu 6 mánuðum.
Hvaða tryggingu þarf ég að veita fyrir láninu?
Lánað er gegn fasteignaveði.
Áhvílandi uppreiknaðar veðskuldir að viðbættu láni sjóðsins, mega ekki vera umfram 65% af metnu markaðsverði viðkomandi eignar sem löggiltur fasteignasali eða annar sérfróður aðili tilnefndur af sjóðnum framkvæmir.
Lántaki greiðir kostnað vegna verðmats fasteignar.
Lánað er gegn fasteignaveði í íbúðarhúsnæði lántaka, maka hans eða aðila sem hann er í óvígðri sambúð eða staðfestri samvist með.
Nánar um veð og veðflutning.
Hvernig get ég fundið út greiðslubyrði lána?
Með lánareiknivélinni geturðu reiknað út greiðslubyrði sjóðfélagalána og hvernig greiðslur skiptast á lánstímanum.
Hvernig lán eru í boði?
Lán með föstum eða breytilegum vöxtum
- Fastir vextir haldast óbreyttir út lánstímann.
- Breytilegir vextir taka breytingum 15. hvers mánaðar, í samræmi við ákvæði lánareglna sjóðsins og fylgja þróun vaxta á almennum markaði.
Lán með föstum vöxtum: Hægt er að velja lán með föstum vöxtum. Velja má á milli lána með jöfnum greiðslum (annuitet) eða jöfnum afborgunum.
Lán með breytilegum vöxtum: Einungis er hægt að velja breytilega vexti ef lán er með jöfnum afborgunum. Þá skiptir ekki máli á hvaða veðrétti lánið hvílir.
Lán með jöfnum afborgunum eða jafngreiðslulán (annuitet).
Jafnar greiðslur: Jafngreiðslulán (annuitet) þýðir að greiðslur sem þú innir af hendi eru jafnháar út lánstímann, en taka breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs. Hins vegar er vægi afborgana og vaxta breytilegt. Höfuðstóll greiðist hægar niður en á láni með jöfnum afborgunum.
Jafnar afborganir: Á lánum með jöfnum afborgunum er höfuðstóllinn alltaf greiddur jafn mikið niður við hverja greiðslu. Greiðslubyrði er þannig þyngst í upphafi en léttist eftir því sem líður á lánstímann.
Lán með jöfnum greiðslum (annuitet) Smellið til að stækka |
|
|---|---|
| Báðar útfærslur eru miðaðar við 4 mkr. lán til 25 ára, með föstum vöxtum. Ekki er tekið tillit til verðbólgu. |
|
Hver eru vaxtakjörin?
Lán með föstum vöxtum: 3,9
Lán með breytilegum vöxtum: 3.41 (15. maí 2013)
Vextir lána með breytilegum vöxtum taka breytingum 15. hvers mánaðar og eru 0,75% hærri en meðalávöxtun í síðasta mánuði á nýjasta flokki íbúðabréfa (HFF 150434) til 30 ára skráð í kauphöll Nasdaq OMX.
Hver er lánstími og fjöldi gjalddaga?
Val er um lánstíma frá 5 árum til 40 ára.
Fjöldi gjalddaga er 12 á ári.
Hvaða gögn eiga að fylgja með lánsumsókn?
- Nýtt veðbókarvottorð stimplað af sýslumanni. (Athugið að veðbandayfirlit jafngildir ekki veðbókarvottorði)
- Nýjar eftirstöðvar áhvílandi lána eða síðustu greiddu greiðsluseðlar (kvittanir).
- Afrit af tryggingarbréfum sem hvíla á eigninni. (Ef við á)
- Afrit af þinglýstum kaupsamningi hafi eignin skipt um eigendur á síðustu 3 árum.
- Verðmat frá löggiltum fasteignasala. (Í samráði við starfsmenn sjóðsins)
- Vottorð um smíðatryggingu sé eign í smíðum.
- Greiðslumat óski lífeyrissjóðurinn eftir því. Almennt skal fylgja greiðslumat ef samtala skulda sem tryggðar eru með veði í hinni veðsettu eign fer yfir 20 milljónir króna að viðbættu því láni sem sótt er um. Miða skal við að greiðslumat sé ekki eldra en þriggja mánaða þegar sótt er um lán.
Hvaða kostnaður fellur til við lántöku?
Lántaki greiðir 1,5% stimpilgjald af lánsfjárhæð og 2.000 kr. þinglýsingargjald. Lántökugjald, 1% af lánsfjárhæð, er dregið af andvirði lánsins við útborgun.
Hvaða gjöld þarf ég að greiða vegna skjalagerðar?
| Kostnaður við skjalagerð |
|
|---|---|
| Veðflutningar | 2.300 kr. |
| Veðleyfi | 2.300 kr. |
| Veðleyfi skilyrt | 2.300 kr. |
| Veðbandslausn að hluta | 2.300 kr. |
| Skilmálabreyting lána | 2.300 kr. |
| Skuldaraskipti | 0 kr. |
| Skuldbreyting | 0 kr. |
| Ábyrgðarpóstur (skv. verðskrá póstsins janúar2012) |
905 kr. |
| Sendingarkostnaður | 950 kr. |
- Bankareikningur: 515-26-401144
- Kennitala: 430269-4459.
Hvað tekur langan tíma að afgreiða nýtt lán?
Frá því að umsókn er send með öllum nauðsynlegum fylgiskjölum geta liðið allt að 2 vikur þangað til lánið er greitt inn á reikning lántaka.
Get ég sett lánið mitt í greiðsluþjónustu í banka?
Þægilegt er að greiða af láninu í gegnum greiðsluþjónustu bankanna.
Lántaki gerir þá samning við viðskiptabanka sinn eða sparisjóð en kostir þess að hafa lánið í greiðsluþjónustu eru m.a.:
- Útgjaldasveiflur jafnaðar.
- Enginn vanskilakostnaður.
- Enginn gluggapóstur.
- Betri yfirsýn yfir útgjöld.
Vinsamlegast hafðu samband við viðskiptabanka þinn eða sparisjóð varðandi greiðsluþjónustu.
Hér eru lánareglur sjóðsins til útprentunar (pdf, 2 síður)
