Lántakandi
Greiðsluerfiðleikaúrræði

Úrræði vegna greiðsluerfiðleika

Skilmálabreytingar

  • lan-1

Lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum sem eiga í erfiðleikum með að greiða af lánum sínum hjá sjóðnum upp á margvísleg úrræði.

Sjóðfélagar sem sjá fram á að eiga í greiðsluerfiðleikum eru hvattir til að hafa samband við sjóðinn sem fyrst svo hægt sé að leita hentugra lausna og koma þannig í veg fyrir aukinn kostnað og áhyggjur.

Hér er að finna yfirlit yfir þau ráð sem sjóðfélögum standa til boða:


Lánstími lengdur í allt að 40 ár frá útgáfudegi

Lántakendum með lán til skemmri tíma en 40 ára býðst að lengja lánstímann í 40 ár og lækka þannig greiðslubyrðina.

Hafa verður í huga að þessu fylgir sá ókostur að lánið verður dýrara þegar upp er staðið því vextir og verðbætur reiknast á lánið yfir lengri tíma.

Beiðni um skilmálabreytingu á láni

Láni með jöfnum afborgunum breytt í jafngreiðslulán

Oft er greiðslubyrði lána með jöfnum afborgunum nokkuð þyngri en af jafngreiðslulánum. Ef lán er á fyrsta veðrétti

er hægt að lækka greiðslubyrðina með því að óska eftir breytingu á skilmálum láns með jöfnum afborgunum þannig að afborganir miðist við jafnar greiðslur (annuitet).

Við þessa breytingu þarf að hafa í huga að annuitetslán eru að endingu dýrari, þ.e. heildargreiðsla vaxta og verðbóta verður hærri yfir lánstímann þar sem afborgun af höfuðstól lánsins er lægri til að byrja með.

Beiðni um skilmálabreytingu á láni

Fjölgun gjalddaga

Fyrir þá sem eru með afborganir sjaldnar en á eins mánaða fresti, t.d. með þrjá mánuði milli gjalddaga, getur verið ráðlegt að breyta í mánaðarlegar afborganir.

Reynsla margra er sú að með þeim hætti eru greiðslur vegna lána í betri takti við tekjur heimilisins og því minni hætta á að til vanskila komi.

Beiðni um skilmálabreytingu á láni

Greiðslujöfnun

Tilgangur greiðslujöfnunar er að létta tímabundið greiðslubyrðina vegna afborgana fasteignaveðlána.

Greiðslujöfnun felst í því að greiðslujöfnunarvísitala er borin saman við vísitölu neysluverðs. Ef afborganir samkvæmt greiðslujöfnunarvísitölu reynast lægri en afborganir samkvæmt vísitölu neysluverðs er þeim hluta af afborgunum lánsins sem nemur mismuninum frestað þar til greiðslujöfnunarvísitalan hækkar á ný umfram vísitölu neysluverðs. Sá hluti afborgana sem frestast er færður á jöfnunarreikning sem bætist við höfuðstól lánsins og sem lántaki greiðir síðar á lánstímanum með vöxtum og verðbótum.

Greiðslujöfnun felur ekki í sér eftirgjöf á skuldum heldur er um að ræða frestun afborgana að hluta og þegar til lengri tíma litið hefur hún því í för með sér aukinn heildarkostnað vaxta og verðbóta fyrir lántaka. Því er ekki sjálfgefið að velja greiðslujöfnun þótt hún létti greiðslubyrðina tímabundið.

Frekari upplýsingar um greiðslujöfnun.

Umsókn um greiðslujöfnun

Ýtarlegri upplýsingar um greiðslujöfnun má sjá á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins.

Skuldbreyting

Skuldbreyting á við ef um veruleg vanskil er að ræða og ólíklegt er að önnur úrræði leysi greiðsluvandann. Skuldbreyting er yfirleitt ekki gerð oftar en einu sinni fyrir hvert lán og felst hún í því að uppsöfnuðum vanskilum er bætt við eftirstöðvar lánsins. Möguleiki til að skuldbreyta getur einnig takmarkast af veðrými og samþykki síðari veðhafa. Tímabundin undanþága hefur verið veitt frá greiðslu stimpilgjalds vegna skilmálabreytinga af þessu tagi.


Nánari upplýsingar um úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda er að finna hjá Umboðsmanni skuldara:  www.ums.is





Tungumál