Eignasamsetning
Hér má sjá hvernig eignasamsetning sjóðsins var í lok árs 2010. Hlutfall innlendra verðbréfa hefur aukist í eignasafninu. Erlendar fjárfestingar eru takmarkaðar við gildandi gjaldeyrishöft. Verðbréfaeignin nam 326,7 milljörðum króna í árslok 2010 samanborið við 298,5 milljarða í árslok 2009.

Einföld sundurliðun eigna
Einfaldasta sundurgreining á eignum sjóðsins er að
skipta þeim í innlán banka og sparisjóða, skuldabréf og hlutabréf. Á meðfylgjandi kökuriti má sjá stöðu þessarar skiptingar um áramót.
Skipting milli innlendra og erlendra eigna
Aukið vægi erlendra verðbréfa er til að lágmarka þá áhættu sem felst í fjárfestingu á litlum fjármálamarkaði eins og á Íslandi.
Þrátt fyrir að hlutabréf gefi almennt bestu ávöxtunina til lengri tíma litið hafa aðstæður undanfarinna missera leitt til verulegra breytinga í eignasafninu. Til að lágmarka áhættu er fjárfestingum í hlutabréfum dreift á sjóði, félög, lönd og atvinnugreinar. Með þessu er leitast við að draga úr sveiflum í ávöxtun og áhættu.
Sundurliðun innlendra hlutabréfa
Hér má sjá hvernig innlend hlutabréf skiptast niður á félög. Upphæðirnar eru í þúsundum króna.
| Hlutabréf skráð í Kauphöll Íslands | Eignarhluti % | Bókfært verð í þús. kr. |
|---|---|---|
| Century Aluminium Company |
0,2 |
267.380 |
| Icelandair Group hf. |
9,7 | 1.523.067 |
| Marel h.f. |
5,8 |
4.248.103 |
| Nýherji h.f. |
9,4 |
263.000 |
| Össur h.f. | 3,7 |
3.432.531 |
| Samtals |
9.734.081 |
|
| Óskráð hlutabréf | ||
| Bakkavör Group ehf. A-hlutir |
7,2 |
3.900 |
| Bakkavör Group ehf. B-hlutir |
7,6 |
14.972 |
| Bakkavör Group ehf. C-hlutir |
7,6 |
536.605 |
| Eignarh.fél. líf.sj. um Verðbréfaþing og önnur félög ehf |
12,9 |
1.560 |
| Eimskipafélag íslands ehf. |
0,6 |
113.156 |
| Exista ehf. |
3,1 |
47.598 |
| Framtaksstjóður Íslands GP ehf. |
19,9 |
799 |
| Framtakssjóður Íslands slhf. |
19,9 |
842.757 |
| Stoðir hf. |
0,4 |
85.917 |
| Virðing hf. |
9,9 |
56.047 |
| Samtals |
1.703.311 |
|
| Hlutabréf alls | 11.437.392 |
|
Sundurliðun innlendra skuldabréfa
Innlend skuldabréf skiptast í þrjá undirflokka. Þeir eru skuldabréf með ríkisábyrgð sem og skuldabréf fyrirtækja, sveitarfélaga og annarra aðila. Auk þessa falla lán til sjóðfélaga í þennan flokk en þau eru öll veðtryggð.
Hægt er að sjá nákvæmari sundurgreiningu á innlendum skuldabréfum til að kanna betur hvaða fjárfestingar standa á bak við þessa flokkun.
Sundurliðun erlendra verðbréfa
Erlendum verðbréfum má skipta í tvennt. Annars vegar sjóði og eignasöfn og hins vegar framtakssjóði. Verðbréfin eru í dreifðum sjóðum til að dreifa vel áhættunni. Hér má sjá hvaða sjóðir og eignasöfn voru í eign lífeyrissjóðsins við ársuppgjörið 2010.
Sundurliðun eigna innlánsleiðar í séreignardeild
Hér má sjá sundurliðun innlána í innlánsleið séreignardeildar sjóðsins. Sundurliðunin er annars vegar á milli verðtryggðra og óverðtryggðra innlána og hins vegar á milli fjármálastofnana sem innlánsreikningarnir tilheyra.
Mynd 1: 
Mynd 1 sýnir skiptingu innlána í innlánsleið séreignarsparnaðar á milli fjármálastofnana á Íslandi
Mynd 2:
Mynd 2 sýnir hlutfall verðtryggðra og óverðtryggðra innlána í innlánsleið séreignardeildar.
