Fjárfestingar
Ávöxtun

Ávöxtun

Sameignardeild

Fjárfestingarstefna sjóðsins byggir á því að skila góðri langtímaávöxtun. Búast má við að ávöxtun eignasafns með 30-50% vægi hlutabréfa sveiflist á milli ára. Samval eignaflokka og verðbréfa skal þó stuðla að því að takmarka sveiflur í ávöxtun.
sameignardeild2

Ávöxtun getur tímabundið verið neikvæð en til lengri tíma litið er áætlað að raunávöxtun verði á bilinu 4-7% sem er langtímamarkmið sjóðsins.

Á myndinni til hliðar má sjá 5 ára meðalraunávöxtun síðustu 25 ár. Meðalraunvöxtun var hæst á árunum 1996-2000 eða 7,6%. Meðalraunávöxtun sameignardeildar síðustu 25 ár er 4,7%.





Tafla:  Ávöxtun

Ávöxtun einstakra ára má sjá í töflunni hér að neðan.

Ávöxtun
2010
2009
2008
2007
2006
Hrein nafnávöxtun*
6,1%
9,9%
-11,8.%
7,0%
20,5%
Raunávöxtun* 3,5%
1,2%
-24,1%
1,1%
12,7%
Hrein raunávöxtun*
3,4%
1,1%
-24,2%
1,1%
12,7%
Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal)
-2,0%
0,3%
2,3%
10,6%
9,8%
Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal)
2,4%
2,2%
3,2%
6,9%
7,8%
* Ávöxtun er reiknuð skv. reglum FME (ekki daglegt gengi eigna)



Séreignardeild

Sjóðfélagar í séreignardeild geta valið á milli tveggja ávöxtunarleiða, verðbréfaleiðar og innlánsleiðar.

Verðbréfaleið

Verðbréfaleiðin er ávöxtuð samhliða sameignardeildinni.  Ávöxtun verðbréfaleiðar er því sú sama og sjá má hér að ofan. 

Innlánsleið

Innlánsleiðin er ný ávöxtunarleið fyrir séreignarsparnað sem hóf starfsemi í febrúar 2009. Sparnaðurinn er ávaxtaður á innlánsreikningum banka og sparisjóða. Hrein nafnávöxtun árið 2010 var 5,8%.

  % á ársgrundvelli
Hrein nafnávöxtun
 5,8%
Hrein raunávöxtun
 3,1%



 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica