Fjárfestingar
Helstu áhættuþættir
  • dreamstimefree_368717_fugl_i_tre

Helstu áhættuþættir

Til að geta staðið við skuldbindingar sínar ávaxtar lífeyrissjóðurinn eignir sínar í skuldabréfum og hlutabréfum, en verðmæti þeirra eigna getur sveiflast í verði vegna markaðsaðstæðna frá einum tíma til annars. Samval eignaflokka og verðbréfa dregur úr þeim sveiflum.

Við mat á lífeyrisskuldbindingum sjóðsins í tryggingafræðilegri úttekt er miðað við að raunávöxtun sé að lágmarki 3,5%. Helstu áhættuþættir eru:

Markaðsáhætta - Lækkun á verðmæti hlutabréfa

Þegar verðmæti hlutabréfa lækkar rýrir það eignir sjóðsins til skemmri tíma litið. Hlutabréf eru langtímafjárfesting og eðlilegt að þau sveiflist í verði. Til að draga úr áhættu er áhersla lögð á mikla eignadreifingu á lönd og atvinnugreinar.

Gjaldmiðlaáhætta - Þróun gengis íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum

Þegar gengi íslensku krónunnar styrkist lækkar verðmæti erlendra eigna í krónum talið og þar með geta sjóðsins til að standa við skuldbindingar. Með gjaldmiðlavarnarsamningum er hægt að draga úr þessari áhættu.

Útgefandaáhætta - Lánshæfi útgefanda versnar

Útgefandaáhætta felst í því að útgefandi verðbréfs getur ekki staðið við skuldbindingar sínar að hluta eða að öllu leyti. Til að draga úr áhættunni eru settar takmarkanir á hve hátt hlutfall eigna má vera fjárfest í verðbréfum útgefnum af einum og sama aðila, aðilum sem tilheyra sömu samstæðu eða tengdum aðilum.

Skuldbindingaáhætta - Áhætta vegna lífeyrisskuldbindinga

Skuldbindingaáhætta felst í áhættu vegna áhrifa aukinna lífs- og örorkulíkinda á tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Aukin áhætta þýðir að erfiðara gæti orðið fyrir sjóðinn að standa við skuldbindingar sínar gagnvart sjóðfélögum. Áhrif á þetta hefur aldursskipting sjóðfélaga sem og skipting þeirra í starfsgreinum.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica