Lífeyrisbyrði
Lífeyrisbyrði
Lífeyrisbyrði sjóðsins, þ.e. lífeyrir í hlutfalli af iðgjöldum, hefur farið hækkandi frá árinu 2000 er hún var 27,5,%, samanborið við 42,0% á fyrstu níu mánuði ársins 2010. Meðalaldur greiðandi sjóðfélaga er 36 ár. Iðgjöld til sjóðsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 skiptast þannig að 18% iðgjalda eru vegna sjóðfélaga yngri en 30 ára, 47% eru vegna sjóðfélaga yngri en 40 ára og 73% iðgjalda eru vegna sjóðfélaga yngri en 50 ára.
Spá um þróun lífeyrisbyrði á næstu árum bendir til þess að hún vaxi hægfara og verði 48% til 52% árið 2015. Þessi fyrirsjáanlega þróun með tilliti til réttindaávinnslu hjá lífeyrissjóðnum mun leiða til þess að áætlað framtíðargreiðsluflæði vegna lífeyrisskuldbindinga muni nema liðlega þriðjungi af ráðstöfunarfé til nýfjárfestinga á árinu 2015.Þrátt fyrir ofangreinda þróun lífeyrisbyrðarinnar og greiðsluflæðis lífeyris er sjóðnum kleift að beita langtímamarkmiðum við ákvörðun um fjárfestingastefnu lífeyrissjóðsins.Til baka
