Fjárfestingarstefna
LV er fagfjárfestir sem hefur að höfuðmarkmiði að hámarka eignir og réttindi sjóðfélaganna og skal það sjónarmið lagt til grundvallar við fjárfestingar og eignastýringu á verðbréfasafni sjóðsins. Hér er hægt að lesa sér betur til um grundvöll fjárfestingarstefnunnar.
Deildir
Sjóðurinn skiptist í tvær deildir:
- A-deild, sem er sameignardeild
- B-deild, sem er séreignardeild
- Leið 1, verðbréfaleið - fylgir sömu fjárfestingastefnu og sameignarleið
- Leið 2, innlánsleið - er ávöxtuð í innlánum viðskiptabanka og sparisjóða með áherslu á verðtryggð innlán.
Fjárfestingastefna sameignardeildar og verðbréfaleiðar
Fjárfestingastefnan byggir á skiptingu eignaflokka eins og sjá má í meðfylgjandi töflu:
| Eignaflokkur | Frá % | Til % |
|---|---|---|
| Innlán | 0 | 15 |
| Innlend skuldabréf | 40 | 60 |
| Innlend hlutabréf | 5 | 15 |
| Erlend skuldabréf | 0 | 5 |
| Erlend hlutabréf * | 30 | 50 |
*Undir erlend hlutabréf falla að auki framtakssjóðir (Private equity funds).
Innlend skuldabréf skulu vera 40-60% af eignum og þar af í ríkisskuldabréfum 20-50%, en einnig er heimilt að fjárfesta í skuldabréfum sveitarfélaga 0-5%, skuldabréfum fjármálafyrirtækja 5-20%, fasteignatryggðum skuldabréfum (lánum til sjóðfélaga) 10-25% og skuldabréfum fyrirtækja 0-15%, með áhættudreifingu að leiðarljósi.
Fjárfestingar í erlendum skuldabréfum 0-5% skulu vera í vel dreifðum skuldabréfasjóðum.
Fjárfestingar í hlutabréfum skulu vera 35-60% og dreifast á sjóði, félög, lönd og atvinnugreinar til að draga úr sveiflum í ávöxtun. Lögð er áhersla á eignadreifingu og á að árangur sé góður til lengri tíma litið. Fjárfestingar á innlendum hlutabréfamarkaði skulu vera 5-15% af eignum og í erlendum hlutabréfum 30-50%.
Markmið og viðmið um ávöxtun og áhættu
Fjárfestingastefnan byggir á ávöxtunarviðmiðum fyrir einstaka eignaflokka.
- Viðmið um raunávöxtun annarra eignaflokka en hlutabréfa er 4 til 7%.
- Viðmið við ávöxtun innlendra hlutabréfa sjóðsins er Úrvalsvísitala aðallista Nasdaq OMX Íslands.
- Viðmið við ávöxtun erlendra hlutabréfa sjóðsins er heimsvísitala Morgan Stanley (MSCI).
- Ávöxtunarviðmið erlendra framtakssjóða (Private Equity Funds) er tvennskonar, annars vegar 5 til 8% umfram ávöxtun heimsvísitölu hlutabréfa (MSCI) og hins vegar 15 til 20% nafnávöxtun í viðkomandi skráningarmynt.
Heimildir til eignastýringar
Eignastýring sjóðsins stýrir verðbréfasafni hans innan þeirra marka sem mælt er fyrir um í fjárfestingastefnu sjóðsins.
| Tegund eignar/fjárfestingar | Frá % | Til % |
|---|---|---|
| Innlán í bönkum og sparisjóðum | 0 | 15 |
| Skuldabréf með ábyrgð ríkisins | 20 | 50 |
| Skuldabréf bæjar- og sveitarfélaga | 0 | 5 |
| Skuldabréf og víxlar banka, sparisjóða og annarra lánastofnana | 5 | 20 |
| Fasteignaveðtryggð skuldabréf | 10 | 25 |
| Hlutabréf | 30 | 60 |
| Önnur verðbréf | 0 | 15 |
Í fjárfestingastefnu eru settar fram skýringar við einstaka eignaflokka sem fela í sér nánari útlistun.
Viðmiðanir við ráðstöfun fjármuna og eignastýringu
Í fjárfestingastefnu sjóðsins eru einnig sett fram og útfærð viðmið sem ætlað er að tryggja örugga ráðstöfun fjármuna sjóðsins.
Í fjárfestingastefnu eru sett fram sérstök viðmið vegna fjárfestinga í hlutabréfum. Þar er lögð áhersla á atriði sem eru til þess fallin að draga úr þeirri áhættu sem óhjákvæmilega fylgir fjárfestingum í hlutabréfum.
Lífeyrisbyrði
Spá um lífeyrisbyrði hefur áhrif á mótun fjárfestingastefnu. Við gerð fjárfestingarstefnu er tekið tillit til áætlaðrar lífeyrisbyrði.
Hér má finna fjárfestingastefnuna fyrir árið 2010 í heild sinni.

